Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 33

Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 33
161 LÖGRJETTA 162 ina. 'Þetta er fólk, sem metur trú sína meir en magan og fjárhagslegan hagnað, og það er fúst á að færa trú sinni fórnir. Enda þótt kenningar Zwinglis sjeu á ýms- an hátt frjálslegri og víðsýnni en kenningar Lúthers, þá eru Svisslendingar samt nokkuð spaugilega þröngsýnir á sviði trúarbragð- anna og ætla jeg að greina hjer eitt dæmi, sem er nú reyndar orðið áttatíu ára gamalt: Um 1850 sótti þýskur guðfræðingur og heimspekingur, Johann David Strausz að nafni, um dvalarleyfi í Ziirich, stærstu borg- inni í Sviss. Strausz hafði meðal annars skrifað bók um líf Jesú, þar sem hann held- ur því fastlega fram, að Jesús hafi eingöngu verið manns en ekki guðs sonur. Þessi bók vakti mikla eftirtekt, en einnig mikla gremju meðal strangtrúaðra Þjóðverja og þeirra, er þýska tungu töluðu. Þrátt fyrir þetta veitti borgarstjórinn í Ziirich Strausz dvalarleyfi og áleit ekkert því til hindrunar að hann fengi að vera þar. En þetta þoldu svissnesku sveitamennimir ekki og í mótmælaskyni gengu 10.000 bændur og búalið í kröfugöngu inn í borgina. Þeir voru vopnaðir með kvísl- um, skóflum, hrífum, ljáum, öxum, orfum, spýtum, járnteinum, eldhússkörungum og öllu sem þeir náðu í; og árangurinn var sá að þeir drápu borgarstjórann, en David Strausz var bannað að stíga fæti sínum inn- yfir svissnesku landamærin. Hætturnar, sem sí og æ vofa yfir dalbúan- um og barátta hans við náttúruöflin gera hann ekki aðeins trúaðan, heldur og líka hjá- trúarfullan. Hann kann býsnin öll af kynja- sögum og þjóðsögnum af snjóhlaupum, skrið- um eða stórviðri og rjettlætistilfinning hans er svo sterk, að hann lætur guð altaf hegna þeim syndugu og vondu, en bjarga hin- um góðu og rjettlátu. Þeir kunna líka mikið af æfintýra- og hetjusögum af gemsuskytt- unum og glímumönnunum sínum, þessar sagnir lifa á vörum þjóðarinnar, mann fram af manni og eru samt altaf jafnlifandi og altaf jafn nýjar. Þegar selbúinn hefur annast störf sín og hefur ekkert sjerstakt fyrir stafni, þá leitar hann skemtunar eða dægrastyttingar á ein- hvem hátt. Það er ekki um dansleiki eða aðr- ar skemtisamkomur að ræða, nema örsjald- an og þá helst að vetrinum, enda er hann til margs annars betur fallinn en til að dansa. Ilann verður því að leita að einhverju, sem stendur honum nær, og það finnur hann í sögusögnum og söng. Selbúinn er hljómelsk- ur og iðulega þegar maður heimsækir hann upp í selin syngur hann með raust eða leikur á margfalda harmoniku. En söngur Alpabú- ans hefur sín einkenni ekki síður en rímna- kveðskapurinn íslenski, en er þó með alt öðr- um hætti. Svisslendingurinn sækir mjóróma tóna niður í kokið, sem eru ýmist tryll- andi fjörugir og fullir af eldlegu lífi, eða þeir ej-u angurværir og þunglyndislega dreym- andi. Þannig er og líf þeirra sjálfra og þann- ig er náttúran sem þeir lifa í. Þessi söngur þeirra heitir „jodeln". Sumstaðar mynda fjallabúar heil kór, ýmist karlakór eða blönd- uð kór, alt „jodler“-söngvarar, sem syngja eingöngu Alpasöngva og selvísur með har- moniku- og Alpahorns-undirleik. Alpahomið er víðfrægt hljóðfæri meðal Svisslendinga, það er úr viði og svo langt, að þegar maður stendur og blæs í það, nemur neðri endi þess við jörðu, en þar beygist hann upp og víkk- ar, ekki ólíkt reykjarpípu. Þessi söngkór og hljómsveitir ferðast árlega til borganna, söngfólkið er klætt í gamla þjóðbúninga og það syngur og leikur, oftast við ágæta að- sókn. Sumstaðar er það ennþá regla uppi í selj- unum, að syngja á hverju kvöldi svokallaða selblessun og eru þær sín með hverju móti eítir fjölda dalanna og breytingu umhverf- isins; flestar eru þær samt þunglyndislegar og svæfandi. Víða fylgir selblessuninni und- irleikur harmoniku, alpahorns eða svokall- aðrar Volle, en það er nokkurskonar trje- trekt eða gjallarlúður. Með selblesuninni var öllum illum öndum haldið burt frá mönnum sem skepnum, en þó aðeins á því svæði, þar sem selblessunin heyrðist. Það var því mikils um vert að vera raddsterkur og geta látið hana heyrast sem lengst. Ein þjóðsagan seg- ir frá því, að kvöld eitt hafi hirðir nokkur gleymt að syngja selblessunina og var nærri fallinn í svefn þegar hann heyrir óminn í bjöllum kúa sinna smáfjara út í stefnu til fjalls. Hann rauk upp með andfælum, því hann vissi að það var illur andi sem var að

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.