Lögrétta - 01.07.1933, Síða 34

Lögrétta - 01.07.1933, Síða 34
163 LÖGRJETTA 164 stela kúnum hans; hann söng því selblessun- ina með allri þeirri rödd, sem hann átti til og kýrnar komu með tölu til baka. Eftir þetta gleymdi hann aldrei að syngja sel- blessunina. Það kemur stöku sinnum fyrir, að Sviss- lendingar halda skemtanir og þá er óhætt að segja, að þeir skemti sjer vel. Jeg hef einu sinni verið á dansleik meðal selfólks, þar voru bændur, bændasynir, vinnumenn, kúasmalar, geitastrákar, heimasætur og vinnukonur og það er ábyggilega lang fjör- ugasti og L alla lund lífmesti dansleikur, sem jeg hef sótt. Það gerði ekkert til þótt karlmennirnir væru með trjeklossa eða járn- uð stígvjel á fótunum, því öll misstig og all- ir árekstrar voru fyrirgefnir með alveg sjer- staklega hjartanlegri góðvild. Fólkið kann ekki nýtísku dansa og kærir sig ekkert um að læra þá, því það kann polka, marsúrka og Wínarvalsinn og það nægir því gjörsamlega. Fjörið og ánægjan skein út úr hverju and- liti og hverri hreyfingu fólksins. Þannig dansaði það í gleðivímu frameftir nóttunni en hjelt svo kátt og ánægt upp í selin sín um morguninn. Þó að líf fjallabúanna virðist frá sjónar- miði borgarbúanna vera einmanalegt og tóm- legt, þá er þó síður en að svo sje. Náttúran er auðug af fjölbreytni, veðrabrigðin eru inikil og sterk, en geti eða þurfi selbúinn ekki að vera úti undir berum himni, þá hef- ur hann gnægð söngva og sagna sjer til dægrastyttingar. Ferðalangurinn, sem leggur land undir fót inn til þessara afskektu Alpadala, hittir fyrir konur og karla, sem vinna í sveita síns andlitis fyrir bjargræði sínu, hann sjer þorp og bændabýli bygð í gömlum, samræmdum stíl og upp um hlíðarnar sjer hann kindurn- ar, geiturnar og kúahjarðirnar breiða úr sjer. Ómur bjallanna berst til hans niður í dalinn og býður hann velkominn í friðsælu fjallanna. Það er seljalífið sem speglast þar uppi. Öðru hvoru hittir hann fyrir gamla konu í þjóðbúningi eða böm að leik, karl- mennina sjer hann leggja með þungar byrð- ar upp fjallshlíðarnar, upp í selin. Ferða- iangurinn hittir hjer fyrir aflmikla bænda- stjett, sem haldið hefur eiginleikum sínum ^Kvæðí Sflir Sígurð Sígurðsson frá yTrnarholtí. TAanvísur, Gaman væri að ganga með þjer einni og gleyma öllum sora og verða hreinni. þitt bros — hið eina, er bræðir úr mjer tregan og breytir húminu í sóldag yndislegan. þú ert mildibalsam auga og eyra, engill, barn og lilja og miklu fleira, svo engan grunar hvort það mýkir meira, að mega sjá þig, eða fá að heyra. það er svo heilt, að verða ungur aftur í annað sinn og verða mildi og kraftur — íiíjer finst svo hverfult heimsins ysinn, þysinn og hvorugt vaxa í augum, lánið eða slysin. Nú veit jeg, að jeg ætti að yrkja betur því ekki er vænna seinna — bráðum vetur, og hjeðan af krota jeg aldrei ástaletur, sem æskan skilur, eða nokkurs metur. þú verður, seinust kvenna, yrkisefni------- ein einasta kanske til, sem jeg ei nefni! Hvort þetta skeður alt og á að rætast, eitt er víst, að brosið þitt er sætast. Ölkofrar yngrí, i. Jeg mæti’ honum hjer, jeg mæti’ honum þar — en aldrei hann er þar sem áður hann var. Innfrá hjá Rauðará, útfrá hjá Slipp, hipp, hipp! Eða í Vonarstræti ? Lítill, ljettur á fæti. og einkennum öld eftir öld, hún er trúuð og íhaldssöm, en hún er traust, kjarnmikil og veit hvað hún vill. Ferðamaðurinn virðir einkenni þessa fólks fyrir sjer með aðdáun, og það er sama hverrar skoðunar hann er, eða hvaða stefnu hann fylgir, hann hlýtur að yfirgefa Alpabúana fullur lotningar og virðingar. 25. nóv. 1932.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.