Lögrétta - 01.07.1933, Side 40

Lögrétta - 01.07.1933, Side 40
175 LÖGRJETTA fræði. 1841 hlaut hann verðlaun háskólans fyrir ritgerð um franskan skáldskap, og kom hún út á prenti tveimur árum síðar. En próf í fagurfræði og heimspeki tók hann 1845 og hlaut litlu síðar meistaranafnbót fyrir rit um enska skáldið Byron lávarð. EJkki var bað þó prentað fyr en níu árum síðar, og var þá ákveðið með konungsúr- skurði, að meistaranafnbótin skyldi jafn- gilda doktorsnafnbót. Námi Gríms við háskólann er þá lokið eftir átta ára veru þar, og er hann þá hálf- þrítugur að aldri. Á þeim árum hafði hann kynst mörgum helstu mentamönnum Dana og tók yfir höfuð miklu meiri þátt í dönsku mentalífi en algengt var um íslenska stú- denta þá, ritaði töluvert á dönsku og vann sjer álit fyrir gáfur og lærdóm. Vorið 1846 veitti konungur honum 1200 ríkisdala styrk til ferðalaga erlendis, og var það á þeim ár- um talin mjög rífleg styrkveiting, en hún var veitt í því skyni, að Grímur fullkomn- aði þekkingu sína á nýju málunum. Var hann nálægt tveimur árum í því ferðalagi, fór suður á Ítalíu og dvaldi síðar um tíma í París og þar næst 1 Lundúnum, en kom heim til Kaupmannahafnar 1848. Stjórnmálahreyf- ingar voru þá miklar í Danmörku, og segir Jón Þorkelsson í æfisögu Gríms, að hann hafi verið framarlega í flokki þeirra manna, sem gengust fyrir myndun nýs ráðaneytis eftir ríkistöku Friðriks konungs VII. Fjekk þá Grímur fasta stöðu í utanríkisráðaneyt- inu og var um hríð aðstoðarmaður sendi- herra Dana í Brússel og Lundúnum. Hann var þá 28 ára gamall. Eftir það gegnir hann störfum og embættum í utanríkisráðaneyt- inu nálægt 20 árum og er þá að sjálfsögðu allmikið riðinn við dönsk stjórnmál. Hann dvaldi als 30 ár erlendis, en kom þó oft á þeim árum heim hingað á sumrum, að minsta kosti 8 sinnum, tvisvar á námsárum og sex sinnum eftir að þeim lýkur. Hjer heima er hann nær 30 síðustu æfiár sín og fór aldrei utan allan þann tíma. Á námsárunum við háskólann fjekst Grím- ur nokkuð við ljóðagerð á íslensku. En hann hverfur brátt að því, að skrifa fremur á dönsku. Helstu ritsmíðar hans eru þær, sem þegar eru nefndar, og aðalverkið er ritið um 176 Byron. Hann skrifaði í danskt tímarit góða ritgerð um Bjarna Thorarensen og ljet fylgja henni nokkrar þýðingar á kvæðum hans, sem eru aftur á móti ekki vel gerðar. Það er og sagt, að hann hafi fyrstur manna haldið H. C. Andersen fram sem skáldi í Danmörku. En mjer eru ekki kunnar rit- smíðar Gríms á dönsku og leiði jeg því hjá mjer að minnast þeirra nánar. Það er ekki heldur getið annara ritsmíða eftir hann en þeirra, sem hjer hefur verið minst og eru frá yngri árum hans, og því næst að ætla, að hann hafi lítið ritað á dönsku eftir að aldur færðist yfir hann. Á fyrstu árum hans ytra hneigðist hug- ur hans mjög að ,,Fjölnis“-mönnum, þeim Jónasi, Brynjólfi og Konráði. Tómas Sæ- mundsson var kominn heim til íslands þeg- ar Grímur kom á háskólann. Grímur er því sem næst jafnaldri Jóns Thoroddsen og kom til háskólans tveim árum á undan honum og aðeins fimm árum á eftir Jónasi Hall- grímssyni þótt Jónas sje fullum tólf árum eldri. Grímur las þá af kappi útlend skáldrit og fjekst nokkuð við kvæðaþýðingar. En miklu er hann stirðari þýðari á þeim árum en síðar, á elliárunum. í nýlega prentuðu brjefi frá Jónasi Hallgrímssyni til Konráðs Gíslasonar má sjá, að Grímur hefur í fyrstu þýtt byrjunina á kvæðinu ,,Hafið“ eftir Byron, svona: „Aflmikill stormur yfir hafið skríður — og rótar upp þeim aldna, gráa sjá“. En síðan hefur hann lagað þýðinguna: „Aflmikill stormur yfir hafið skríður, erj- andi djúpt hinn gróðurlausa sjá“. Hin al- lcunnu erfiljóð Gríms eftir Jónas Hallgríms- son eru framúrskarandi fallegt kvæði og ber með sjer mörg af bestu skáldeinkennum Gríms, einnig það, hve snjalt hann getur kveðið, þegar því er að skifta. Hann hefur kveðið erfiljóð eftir þá alla, Jónas, Brynjólf og Konráð. En Konráð lifði fram á elliár Gríms. Kvæðið um hann er aðeins þrjú stutt erindi. En það er fullkomið meistara- verk, og kemur þar enn fram hið mikla dá- læti, sem Grímur hafði í æsku á Fjölnis- mönnunum. Kveðskapur Byrons lávarðar hafði mikil og víðtæk áhrif á yngri árum Gríms, og doktorsritgerð hans um Byron sýnir, að

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.