Eimreiðin - 01.05.1907, Blaðsíða 65
i45
að einu og sama blaði, en áður höfðu þeir hvor sitt blað með ofurlítið
mismunandi starfsviði. Auk þess gefur »Nýtt kirkjublað« sig meira að
mentamálum alþýðunnar, en eldri blöðin gerðu.
»Nýtt kirkjublað« gefur sig miklu minna að biblíurannsókninni svo-
nefndu, en »Verði ljós« gerði. það er vel farið. Biblíurannsóknin er
«tórt mál. Hún er ofvaxin litlu íslenzku kirkjublaði, ef menn vilja ræða
hana samvizkusamlega frá báðum hliðum.
»Nýtt kirkjublað« er einasta málgagn kirkjunnar á íslandi. Það er
því óskandi og vonandi, að blaðið eigi góða og langa framtíð fyrir
höndum. Prestar og aðrir kirkjuvinir á íslandi ættu af öllum mætti að
hlynna að útbreiðslu þess. H. P.
MATTH. JOCHUMSSON: LJÓÐMÆLI. V. bindi. Rvík 1906.
I þessu bindi af kvæðum séra Matthíasar eru þýðingar og erfiljóð,
sjónleikurinn »Aldamót« og kvæði frá Danmörku og Noregi. Hin meist-
aralegu erfiljóð hans eru svo alkunn, að það væri að bera í bakkafullan
lækinn, að segja frá þeim. Bezt af erfiljóðum í þessu bindi þykja mér
»Þorbjörg Sveinsdóttir« og »Arnljótur Ólafsson«. — »þú varst eldborg,
nú ertu orðin hraun«, segir hann um Þorbjörgu, og er ekki hægt að
■sýna lyndiseinkenni hennar með íslenzkari líkingu:
Harða, blíða, heita, sterka sál, ólíkt mér, en alt eins fyrir það
hjarta þitt var eldur, gull og stál, ertu gróin við minn hjartastað.
Og einkenni séra Arnljóts koma fram í þessu:
Engan vissi’ eg orri tungu — yndi þitt var alt að grunda —
unna meir, né snilli kunna, orðalags á ströndum Norðra.
/. St.
BEN. GRÖNDAL: DAGRÚN. Rvík, 1906,
Nýtt kvæðakver eftir skáldaöldunginn áttræða. Eru flest kvæðin ný
■eða áður óprentuð, og sum jafnvel frá áttræðisárinu sjálfu, t. d. skop-
Tcvæði um þingmannaförina til Danmerkur o. fl. Sýna þau, að ekki er
Gröndal dauður úr öllum æðum enn, heldur sjálfum sér Iíkur að æsku-
fjöri, þó hann hafi mörg ár á baki. Tvö helztu kvæðin hafa þó áður
verið prentuð í Gefn (»Hugfró« og »Brísingamen«), en ekki fengið að
vera með í kvæðabók hans hér um árið, og er slíkt harla undarlegt um
jafnsnjöll kvæði, sem telja má með hinum beztu kvæðum Gröndals.
Þetta kver er því góður viðbætir við hina almennu kvæðabók hans, sem
allir vinir Gröndals munu taka tveim höndum. V. G.
BEN. GRÖNDAL: NOKKRAR SMÁSÖGUR. Rvík 1906.
í bæklingi þessum (alls 130 bls.) eru fjórar sögur: »f>rjár systur«,
kynjasaga um riddara í álögum; »Fallega Gudda«, um riddara og hirð-
lífsdaður; »Brúðardraugurinn«, riddarasaga um brúðkaup með æfintýra-
brag; »írafells-Móri«, um ferð íslenzkrar kaupmannsekkju og dóttur
hennar frá Akureyri til Rvíkur, og hvernig bæjarlífið þar birtist þeim
bæði í draumsjón og vöku.
Allar eru sögur þessar skemtilegar, en mjög »rómantískar« og
10