Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1907, Page 70

Eimreiðin - 01.05.1907, Page 70
Kvenfrelsi og sjálfstæði. Sjaldan liggjandi úlfr lœr óf getr, né sofandi maðr sigr. Hávamál. Eitthvað þessu líkt virðist hafa vakað fyrir þeim, konunum í Reykjavík, sem skorað hafa á systur sínar um land alt, að senda alþingi áskoranir um að veita öllum lconum, jafnt giftum sem ógiftum, bæði kosningarrétt og kjörgengi til alþingis og að öðru leyti fylsta jafnrétti við karlmenn til allra embætta og hlunninda á mentastofnunum landsins, Enginn getur fyrir sagt, hve almennar undirtektir slík áskorun fær hjá íslenzku kvenþjóðinni. En það eitt, að hún er fram komin, er þó gleðilegur vottur um einhver umbrot í hugum manna — bæði karla og kvenna. Pví líklega stendur þessi hreyfing hjá kvenfólkinu í nánu sambandi við vaxandi sjálfstæðisanda hjá ís- lenzku þjóðinni yfirleitt, körlum sem konum. Pess ætlum vér að minsta kosti að vonast; því annars væri nauðalítið í hreyfinguna varið. Hún væri þá rótlaus í íslenzkum jarðvegi og mundi brátt hjaðna og falla um sjálfa sig. En sé þessi hreyfing aftur á móti sprottin af vaxandi tilfinning fyrir sjálfstæði þjóðarinnar, þá á hún góða framtíð fyrir sér. Hún mundi þá brátt verða samvaxin sjálfri sjálfstæðisbaráttunni og falla og standa með henni. Vér sögðumst vona, að hreyfingin væri þannig undir komin. Eti von er engin vissa, og er því vert að athuga þetta nokkuð frekar, svo að forkólfum hreyfingarinnar gefist færi á að skýra betur afstöðu sína. Að þessi kvenfrelsishreyfing einmitt ér fram komin nú, þegar öll blöð landsins eru sem óðast að ræða sjálfstæðismál þess, bendir á, að þessar umræður hafi snortið svo tilfinningar íslenzkra kvenna, að þær hafi farið að hugsa sem svo: Aumt er nú að geta ekki verið með og lagt atkvæði okkar í vogaskálina fyrir sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar. Pað erum þó við, sem öllum karl- mönnum betur höfum viðhaldið íslenzku þjóðerni. Pað erum við, sem höfum kent sonum og dætrum landsins »ástkæra, ylhýra málið og allri rödd fegra«. Og það erum við, sem höfum haldið uppi íslenzkum þjóðbúningi og þjóðlegum siðum. Og svo verðum

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.