Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Page 2

Eimreiðin - 01.05.1917, Page 2
Ó2 Aftur og aftur hefur siðmenning liðinna alda fallið í auðn; eða afturför fyrir ófriðar sakir. Ófriður sá, sem Hómer kendi mönnum að dásama, steypti þeirri þjóðmenning, sem kend var við Mýkene, svo afleiðingar Tróju-leiðangursins urðu sífeldar óeirðir og ójafnaður öldum saman. Ræða Períklesar til Aþenuborgar- manna á undan Pelopsófriðnum var höfð fyrir herhvöt, þegar vígð var neðanjarðar-járnbraut Lundúnaborgar; en þó varð sá ófriður, sem Períkles hvatti til, með því að minna á mikilleik sið- menningar Aþenumanna, endir allrar dýrðarinnar; því eftir það bættu Grikkir engu verulegu við menningarforða þjóðanna. Pað er varla auðið að finna hörmulegra ófarnaðardæmi í veraldar- sögunni en þennan ófrið, þar sem hin glæsilegasta og frjósamasta siðmenning, sem heimurinn hefur þekt, leið undir lok fyrir of- metnað og vígahug. Siðmenning Rómverja, sem á eftir kom hinni grísku, var að sönnu staðminni, en mátti þó sýnast mikil, jafn- víðfeðma og sú menning var; en samt sem áður týndist hún nálega gersamlega, þá er siðlausu þjóðirnar ruddust inn í hið mikla ríki. Leifarnar, sem hin nýja siðmenning sögunnar spratt upp af, héldust við, en alls eigi fyrir hjálp þeirra, sem börðust við »barbarana«, heldur var það að þakka munkunum, sem flýðu ófriðinn og helguðu líf sitt trúarbrögðunum. En á síðari tímum hafði þrjátíuára-stríðið þau áhrif og afleiðingar, sem engin orð fá lýst, einkum á skapsmuni Pjóðverja, svo tilfinningar þjóðarinnar urðu harðari og grimmari en annarra þjóða, er eigi urðu fyrir jafn-spillandi undirokun ræningja og spellvirkja. Ef vér rennum huganum aftur á bak með breiðu yfirliti yfir söguna, sjáum vér, að það, sem þjóðirnar hafa bætt við varanlega mentun í heiminum, verðskuldar þakklæti vort, en ekki það, sem þær hafa afrekað með vopnum og yfirgangi. Hinir miklu sigur- vegarar eins og Attíla, Tímúr og Dschengis Kan bletta blöð sögunnar með æði og óhljóðum, sem ekkert þýðir. Pað eru land- skjálftar og landplágur, sem koma og fara og skilja eigi annað eftir en auðn og dauða. Gyðingar og Grikkir, Rómverjar og hinar nýju þjóðir Vestur-Evrópu hafa lagt til, nálega alt í frá upp- hafi sögunnar, það sem dýrmætt er og varanlegt í lífi og við- skiftum manna. Rómverjar útbreiddu um gjörvalt veldi sitt, það sem Gyðingar höfðu skapað í trúarefnum, það sem Grikkir áttu eftir sig af listum og vísindum. Á þeim grundvelli, eftir all-langt millibil heimsku og harðneskju, bygðu ítalir, Frakkar, Bretar og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.