Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Page 8

Eimreiðin - 01.05.1917, Page 8
68 cf eigin hagsmuna vonin hefur eigi afstýrt þessu stríði, hví skyld- um vér þá gera ráð fyrir, að sú hvöt afstýri styrjöldum framtíðar- innar? En samt sem áður er það ábatavonin, sem er þess megn- andi, að hegningin getur valdið góðum áhrifum. Pað er friðurinn, en ekki ófriðurinn, sem megnar að lokum að snúa hugum manna frá barsmíði. Enginn efi er á því, að eftir langan ófrið kemur þreyta, sem tryggir frið lengur eða skemur; en hvernig sem þessum ófriði lýkur, og þótt honum lyki á morgun, og með hvaða friðarkostum sem það yrði, mundi hann eigi fyrst um sinn gjósa upp aftur; og það fyrir þá sök, að hvat- irnar verða horfnar, eins og þá stæði. En framvegis mun hver mánuður, sem við ófriðinn bætist, auka háskann, með því að sama skapi eykst sú skoðun manna, að styrjaldir séu eðliskjör þessa heims, menn verða æ harðari og meðaumkvunarminni gagn- vart hryðjuverkum og vinamissi og fylla ímyndunarafl sitt, og einkum hinna uppvaxandi, þeirri skoðun, að stríð og manndráp séu óumflýjanleg, sem og þeirri, að aðrar þjóðir séu svo illar, að heilög skylda sé að tortíma þeim. En yrði styrjöldin leidd til lykta með skynsamlegu viti, með fullri ráðdeild til allra hliða, er skynjaði alt það böl, sem ófriðinum fylgdi, þá yrði auðið að laga hugsunarhátt fjöldans og leggja fastari undirstöðu varanlegs friðar. En leggi menn vopnin niður af eintómri þreytu, mundi uppnámið hefjast á ný, þegar menn væru orðnir afþreyttir, og það því fremur, ef hinar beztu hug- sjónir, sem halda uppi friðinum, hafa farist og aldauða eru orðnar allar vonir um efling og ágæti mannúðar og menningar. Áhrif ófriðarins á uppeldið má með vissu gera ráð fyrir að leiði til þess, að menning næstu kynslóðar eftir stríðið verði minni háttar en hinnar á undan því. Uppeidisfræðslan, hin æðsta sem lægsta, er í sífeldri hættu, að hún verði að sálarlausum æfing- um, þar sem ungbörnum er kend viss kunnátta í því, sem þarf- legt og hnífrétt þykir, og að trúa því, að búið sé að leysa úr ölllum þekkingarefnum, og megi því fara beint eftir fræðslubók- unum; lengra verði ekki komist. En sú mentunaraðferð eyði- leggur andlega starfsemi nemendanna, hindrar hugsun þeirra og námstáp, nema í vissum skólametnaði. Pað er þessi stefna, sem er hættulegur óvinur gamallar siðmenningar, því hún elur sífeld- lega á mentunardrambi þjóðanna, líkt og fór forðum í Býzans, að niðjar hinna frægu Forn-Grikkja urðu sjálfbirgingar af of-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.