Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Page 14

Eimreiðin - 01.05.1917, Page 14
74 niður í barnaskólana. Pað er hreinn misskilningur, að sálarfræðin sé örðug námsgrein, ef hún er rétt kend, svo að nemendum sífelt sé bent á einmitt það, sem þeir á þvi stigi geta athugað hjá sjálf- um sér og jafnöldrum sínum. Með því móti helzt lýsing og at- hugun sífelt í hendur. I þeirri landafræði er altaf fossahljóð. Tími vor er snúinn að efninu. Vér höfum lagt undir oss náttúruna og vanrækt sálina, mér liggur við að segja: ofurselt hana jarðvættunum. En þegar mannkynið sér, að heill þess er ekki að finna í valdinu yfir efninu, heldur er undirbúningurinn undir annað líf, hvort sem það er nokkuð til eða ekki, sjálfsagð- asta einstaklingsskylda mannkynsins1), þá fer það að leggja meiri rækt við sálina en nokkru sinni fyr. Og þá verður líka sálar- fræðin komin langt um lengra en nú, og orðin færari til þess að vísa nýjar brautir. Sem stendur er mest af henni þekking, sem menn eru skamt komnir á veg með að hagnýta sér, einstaklings- afbrigðin eru fremur lítið rannsökuð, og stefnur eins og tilrauna- sálarfræðin eru fremur óaðgengilegar fyrir alþýðu manna, jafnvel mentamanna. En framfarirnar eru miklar og sífeldar og allar búa þær á einhvern hátt í haginn fyrir framtíðina. Pó að vér íslendingar eigum mikinn sálarfræðisfróðleik á víð og dreif í bókmentum vorum, eldri og nýrri, og a. m. k. eina merka bók um nokkur atriði sálarfræðinnar, þar sem er »Hugur og heimur« eftir dr. Guðmund Finnbogason, þá höfum vér til þessa ekki átt neina bók um almenna sálarfræði. Og þó er hún undirstaðan, bæði undir nákvæmari rannsókn á einstökum atriðum og, ef vel á að vera, undir sjálfsathugun einstaklinganna. Pessi undirstaða er nú lögð fyrir Islendinga með bók prófessors Ágústs Bjarnasonar. Peirrar bókar hefi ég beðið með óþreyju síðan ég . vissi að hún var á leiðinni. Hjá oss rekur ekki hver bókin aðra um þau efni, eins og á sér stað með stórþjóðunum, og því var ekki lítilvægt, hvernig þessi fyrsta atrenna hepnaðist. Nú hefi ég lesið bókina og reynt að grandskoða hana, eins og ég hafði vit og þekkingu til. Og mér lízt prýðilega á hana. Hún hefur ekki brugðist vonum mínum. *) Ég bið góðfiísan lesanda að hneykslast ekki of mikið á þessari staðhæf- ingu, ef hún kann að koma í bága við lífsskoðun hans. Vona að geta fært rök að henni í sérstakri grein síðar meir.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.