Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 19

Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 19
79 í sálarfræði, að þar verður að vega hvert orð á gullvog. Par er drepið á svo afarmargt, og margt, sem virðist í fljótu bragði liggja í augum uppi, þarf hinnar vandlegustu íhugunar. Hálf- hugsuðum staðhæfingum og grunntækum lýsingum úr mannþekk- ingu þeirri, sem fólk sérstaklega notast við, hættir við að skjótast í pennann. En lesandinn skimar eftir slíkum göllum eins og gammur eftir bráð. Svo gafst Starcke hinum danska. En sú saga er þannig, að Starcke varð vorið 1916 prófessor í heimspeki við Hafnarháskóla eftir langa baráttu og harða. Settist hann svo þegar við, meðan móðurinn var í honum, og samdi sálarfræði mikla og háfleyga og lét prenta, alt á 4 mánuðum. En er bókin var út komin, laust upp ópi miklu í hinum lærða heimi. Meistari einn í heimspeki, ungur og óvæginn, tókst á hendur að telja upp 100 vitleysur í bókinni á hverri viku í blaði stúdenta, en óvinir Starckes vildu láta brenna bókina á báli á sjálfu Frúartorgi fyrir dyrum háskólans, en höfundur skyldi óferjandi skógarmaður og fé hans fallið í konungsgarð. En þá breiddi örn sá, er situr yfir háskóladyrunum og daglega hefur þann starfa að skygnast eftir ljósi af himnum ofan, vængi sína yfir þann ofsótta. Og undir þeim er hann enn þá. Ágúst Bjarnason hefur varið fleiri árum til sinnar bókar en Starche mánuðum til sinnar, enda mun ekki um auðugan garð að gresja fyrir þann, sem vill leita að staðleysum í' henni. Samt langar mig til þess að fetta hér fingur út í einstöku atriði. Ef höfundi og lesendum finnast þau smávægileg, bið ég þá að taka viljann fyrir verkið. Eg hef tínt það helzta til, sem ég hef komið auga á. Höf. segir í formálanum: »Og sjálf er sálarfræðiu svo skamt á veg komin, að hún getur aðeins lýst sálarlífi manna yfirleitt í hinum almennustu dráttum, en ekki sálarlífi einstaklinganna að neinum verulegum mun. Bví nefni ég líka þessa tilraun mína »almenna sálarfræði««. Betta er dálítið villandi. Tilgangur höf. hefur einmitt verið, að semja almenna sálarfræði, og hvað langt sem sálarfræðin í heild sinni kemst, getur sú grein hennar aldrei farið út 1 að lýsa einstaklingseinkennum að neinum mun, fremur en dýrafræðin t. d. lýsir einkennum einstakra ljóna. Almenna sálarfræðin hlýtur altaf að leggja aðaláherzluna á það, sem sam- eiginlegt er fyrir alla eða flestalla menn. En svo tekur afbrigða- sálarfræðin (differentielle psychologie) við og skýrir frá einkennum 6»

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.