Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 22

Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 22
82 Pó að bók þessi sé dýr eftir venjulegu íslenzku bókaverði, þa ætti hún að verða mikið keypt. Parna er tækifæri fyrir alla þá íslenzku mentamenn, sem lært hafa sálarfræði á dönsku, að rifja upp fyrir sér efnið og læra að tala um það á íslenzku. Og leikmenn þeir víðsvegar um land, er lesið hafa sögurit Ágúsfs Bjarnasonar sér til gagns og gleði, munu ekki iðrast eftir að kynnast sálarfræðinni líka, heldur sjá, að í henni er hvað mestur fengurinn. Kaupmannahöfn í árslok 1916. SIGURÐUR NORDAL. Sumarpáskavisur 1916 Ráfar ráðþrota refilstigu fimbulfanndyngju fluglama sál, meðan vetrarvef vinda og slá verstu vábeyður vorharðinda. Varpa vefinn þann vændis-nornir, þreifa um þræði, þeyta skyttu; strengja og stíga stóðkvendi þau, jaðra jörmunvef, japla og mása. Hrynja úr hafaldi hagl og drífa, lóar land alt af loðmollu. Yfir alhvítu upprisudags látins lávarðar lítur sunna. Svipur sólgeisla, sjaldgæfur nú, verður vanburða á valdi fanna; yl og ástleitni árdagssólar hrinda hart af sér hjarnkrystallar.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.