Eimreiðin - 01.05.1917, Blaðsíða 25
bænir búsmala
um betri kosti;
lítur sjálfan sig
sundurtættan,
ungviði aðþrengd,
örbirgð og s m á n.
Býr upp bölverkur
breiða rekkju,
hefir heimskringlu
• hálfa undir.
Sú er að sunnan
saurguð blóði,
orpin utanverð
óbóta fönn.
Leit út liðsþurfi
löngum augum
eftir yfirstjórn
cðlaðandi;
veik inn vængbrotinn
frá vonlygi —
inn á ómegðar
endileysu.
Eygló fer austan
í úlfakreppu,
logar á lognfönn
lémagna skin.
Hækkar í hafi
hríðarbakki.
Voði er á vaðbergi,
va fyrir dyrum.
GIJÐM. FRIÐJÓNSSON.
ý
Matthíasarvardinn.
Haustið 1915, þegar þjóðskáldið okkar hugum kæra, MATT-
HÍAS JOCHUMSSON, varð áttræður, reistu samborgarar hans á
Akureyri honum veglegan minnisvarða, og hafði samskotaféð til
þess safnast á örskömmum tíma, að mestu leyti í Akureyrarkaup-
stað. Er það allhár steinvarði, og efst á honum brjóstlíkan
skaldsins, mótað af Ríkharði Jónssyní myndhöggvara og
steypt úr eiri (eða bronzi) af Aug. E. Jensen í Khöfn. Stendur
varðinn í lystigarði bæjarins, suður af Gagnfræðaskólanum (sem
sjá má af meðfylgjandi mynd), og ber því hátt mjög yfir bæinn.
Mun, þegar á alt er litið, ekki hafa veriö unt að finna heppilegri
stað, enda vel til fallið, að varðinn stæði nærri skólanum, þar sem