Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Page 28

Eimreiðin - 01.05.1917, Page 28
88 Ræða skólaineistara: í’essi dagur hefur um langt skeið verið sann-nefndur hátíðisdagur í litla bænum okkar. f’á hafa margir af borgurum þessa bæjar fagn- andi safnast saman hjá þjóðskáldinu okkar aldurhnigna, til þess að samgleðjast yfir því, að eiga hann á meðal vor, hressan og ungan í anda, glaðir yfir því, hve harðsótt það ætlaði að verða Elli kerlingu, áð koma honum á kné, auk heldur leggja hann að velli A þessum eftirminnanlegu gleðistundum höfum vér ár eftir ár óskað af heilum hug, að honurn mætti enn takast um mörg ár að verjast brögðum hennar og halda velli, mætti enn langa-lengi auðnast að kveða sheilaga glóð í freðnar þjóðir af andagift þeirri hinni tniklu, sem hann af guðlegri náð hafði fengið í vöggugjöf, kveða inn í hug og hjörtu þjóðarinnar óbifanlega tiú á sigur hins góða, trú á mátt og alveldi hins eilífa kærleika, sem í fyllingu tímans tengi alt lifandi traustum og föstum bróður- og samúðarböndum, svo að spádómsorð hans rætist: »leikur sér með ljóni lamb í paradís«. Ár eftir ár höfurn vér fengið uppfyllingu þessara hjartans óska vorra. Nær þrennir tugir ára eru nú liðnir síðan skáldið séra Matt- hías Jochumsson, góðu heilli, tók sér bólfestu í þessum bæ, í litlu og fornfálegu húsi lengst suður í fjöru; hinn núverandi bólstað hans hér uppi i brekkubrúninni kallar allur almenningur »Sigurhæðir« og er það sannarlega vel til fundið, því við hann á hið fornkveðna, . Kom, sá. sigraði«, sigraði hug og hjörtu allra í þessum bæ, hjörtu allrar þjóðarinnar með snild sinni og góðmensku. Nálega þijátíu afmæli hans höfum vér, margir af oss, með honum verið, þijátíu Marteinsmessur, sem hér ætti fremur að heita Matthfasar- messa eða Matthíasardagur í Almanakinu íslenzka. þessir þrír elli-áratugir hafa farið fram hjá séra Matthíasi og lftil sem engin sýnileg áhrif á hann haft til líkamlegrar hrörnunar eða afturfara; en andi hans hefur þroskast og vaxið með ári hverju; — það sem líkamssjónin hefur deprast. hefur hin andlega sjón að sama skapi eða öllu fremur skýrst og orðið hvassari, skilningurinn á hinum mörgu gátum tilverunnar orðið margfalt gleggri, trúin á sigur hins góða orðið bjargfastari, sannleiksleitin ósleitilegri, fullkomnunarþráin sterkari, þráin eftir að komast »áfram, lengra, ofar, hærra« í sannri lífspeki og góðleik, samfara þeirri innilegu ósk, að eigi aðeins þjóðin hans, heldur allar þjóðir, alt mannkynið mætti fara sívaxandi að vizku og sönnum göfugleik og kærleika, svo sögu styrjaldanna yrði brátt lokið með öllu. því djöfulæði og mannvonzku, sem þeim er samfara, mætti fyrir fult og alt linna. Sælu njótandi, Guðsríki drotni, sverðin brjótandi, dauðans vald þrotni, faðmist fjarlægir lýðir. ko'mi kærleikans tíðir. Slíkar óskir og þrár fylla huga og hjarta skáldsins okkar á æfi- kveldi hans; um það bera kvæði hans og önnur rit órækan vott. Og þetta er ekki nýtilkomið Það gengur eins og rauður þráður gegnum öll hin fegurstu ljóð hans alt frá æsku, en þó einkurn síðan æfidegi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.