Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Qupperneq 32

Eimreiðin - 01.05.1917, Qupperneq 32
92 Andans varning aldrei keypti afsláttar í búðum neinum; gullið upp hann gróf og steypti, gnægð hann átti af dýrum steinum. Meðan ár að ægi streyma og í jarðar lifir glóðum, íslendingar aldrei gleyma óðmæringsins fögru ljóðum. Þó að brotni bjargið harða, brenni málmur, grunnur fúni, óbrotgjarna á hann varða ótalmarga í bragatúni. Með þessu ágæta kvæði, sem Páll skáld Jónsson afhenti mér fyrir skömmu til upplesturs við þetta tækifæri, vil ég Ijúka máli mínu og lofa »Guð vors lands« fyrir skáldið, sem gaf þjóð vorri þann fagra lofsöng, þá dýrðlegu þjóðhymnu, sem hvert barn á þessu landi ætti að kunna og syngja, og bið jafnframt í auðmýkt »föður andanna — föður ljósanna, lífsins rósanna*, að hann á ókominni tíð »lýsi landinu okkar kalda« með mörgum slíkum ljósum, sem Matthías Jochumsson er og hefur verð landi sínu og þjóð, og unni honum að lifa enn um skeið og varpa birtu og yl yfir bæinn okkar, þjóðina okkar, andið okkar. Skáldjöfurinn Matthías Jochums'sonHifi. Allmikill afgangur kvað hafa orðið af fé því, er safnaðist til varðans, talsvert meira en því fé nam, er safnaðist utan Akur- eyrar. Af því fé ákvað varðanefndin að stofna dálítinn sjóð, er helgaður væri minningu þjóðskáldsins Matthíasar Jochumssonar og við hann kendur. Honum sjálfum skyldi svo falið, að ráða og skipa fyrir um, hvernig sjóðnum yrði varið. Petta hefir hann og síðar gert, sett honum skiplagaskrá og gefið honum nafnið Braglistarsjóður, er svo fyrir mælt, að vöxtunum af hon- um skuli, þegar tímar líða, varið til styrktar ungum skáldum og ritlistarmönnum, innan takmarka hins forna Hólastiftis. Aldrei má veita neinum minni árstyrk en 1200 kr. en sami maður getur fengið styrkinn oftar en einu sinni, ef ástæða þykir til. Skólameistari Gagnfræðaskólans á Akureyri eða hins æðsta alm. mentaskóla í hinu forna Hólastifti, bæjarfógetinn á Akureyri og sýslumaður Eyfirðinga hafa stjórn sjóðsins á hendi. Síðar kvað sjóðnum hafa borist álitleg fjárupphæð frá Reykjavík, og telja má víst, að margir bókmentavinir víðsvegar um landið verði til þess, að efla hann, í heiöurskyni við þjóðskáldið, og til þess að flýta fyrir því, að sjóðurinn geti sem allra fyrst farið að vinna að hinu fagra og göfuga markmiði, sem honum er sett. Fátt eða ekkert mundi gleðja skáldið fremur, en vís von um það, að

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.