Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Side 37

Eimreiðin - 01.05.1917, Side 37
97 Kóngssyni þykir nú illa komið fyrir sér; hann finnur, a& tunnan flýtur eitthvað frá landi og veltist lengi í öldunum; en ekki vissi hann, hvað marga daga, þangað til hann finnur, að hún naggrar við klöpp. Glaðnar þá dálítið yfir kóngssyni, því hann hugsar, að þetta muni vera land, heldur en sker. Honum kemur nú til hugar, að reyna að spyrna botninn úr tunnunni, því hann var dálítið syndur. Hann ræður þetta af, þó hann hinsvegar væri hræddur um slæma landtöku. En það var öðru nær, því sléttar klappir voru þar við sjóinn, svo honum gekk vel að komast á land; en há björg voru fyrir ofan. Vill hann nú komast eitthvað upp frá sjónum, þótt torsótt sýndist, og gengur stundarkorn fram með björgunum, þar til hann fer að reyna að klifra upp, og tekst honum það um síðir. Pegar hann er kominn upp, litast hann um, og sér, að það er ey, sem hann er í kominn. Hún var skógi vaxin og frjósöm, og sá hann. þar vaxa epli, góð átu. Þótti honum þarna skemtilegt, að því er landið snerti. fegar hann hafði verið þar nokkra daga, heyrði hann eitt sinn hark mikið í skóginum. Varð hann þá ákaflega hræddur og hljóp í skóginn, til að reyna að fela sig. Hann sér nú, hvar risi kemur með viðarsleða og stefnir á hann. Hann hafði þá engin önnur ráð, en að fleygja sér niður, þar sem hann stóð. Pegar risinn fann hann, stóð hann dálitla stund kyrr og horfði á kóngs- son. Síðan tók hann hann í fang sér, bar hann heim til sín, og var honum óvenjulega góður. Gefur hann nú sveininn kerlingu sinni, er var því nær karlæg; kvaðst hafa fundið barn þetta f skóginum, og skyldi hún hafa það til vika í kringum sig, Kerl- ingu þótti ósköp vænt um þetta, og fór að klappa kóngssyni með miklum blíðmælum. Hann dvelur nú þarna hjá þeim, og er þeim mjög þægur og eftirlátur í öllu, er þau beiddu hann, enda voru þau honum hvern daginn öðrum betri. Einn daginn fer risinn með hann og sýnir honum í allar hirzlur sínar, nema í eldaskálann. Af þessu kom forvitni í kóngsson, til að sjá eldaskálann; því hann hugsaði, að þar væri einhver fáséð gersemi inni. Einn dag, þegar risinn var farinn á skóg, fer kóngsson og ber sig að ná upp eldaskálanum, og kemur hurðinni í hálfa gátt; sér hann þá að eitthvert kvikindi hristir sig, hleypur fram eftir gólfinu og talar eitthvað. Kóngsson hrekkur nú öfugur frá hurð- inni, skellir henni aftur og pissar í buxurnar af hræðslu. Pegar

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.