Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 42

Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 42
102 ráðafár, og segir því við hann, að hann skuli ekki leggjast það undir höfuð, sem kóngur hafi beðið hann. En sínum ráðum skuli hann fylgja, því ella muni hann verða í vandræðum staddur. Kóngsson hlýðir þessu, og fer að búast til ferða. Síðan gengur hann inn fyrir kóng og kveður hann. Pegar Hringur er genginn út aftur frá kóngi, þá segir Snati: »Nú skaltu fyrst fara hér um sveitina í kring og fá þér svo mikið salt, sem þú getur«. Kóngsson gerir þetta, og fær svo mikið af salti, að hann getur ekki borið. Snati segir, að hann skuli fleygja pokanum á hrygg sér, Hringur gerir það. Nú er komið að jólum. Hundurinn rennur altaf á undan kóngssyni, þangað til þeir koma undir ein björg. »Hér verðum við að fara uppc, segir Snati. »Ekki held ég, að það verði neinn hægðarleikur«, segir kóngsson. »Haltu fast í rófu mína«, segir Snati. Síðan stekkur Snati með Hring í róf- unni upp á neðsta stallinn, og fær Hringur þá svima. Svo stekkur Snati með hann upp á annan stallinn; er þá nærri liðið yfir Hring. 1 þriðja sinn stekkur hann með hann upp á björgin; er þá alveg liðið yfir Hring. Eftir litla stund raknar hann við; ganga þeir stundarkorn eftir sléttum völlum, þar til þeir koma að einum helli. þá var aðfangadagskvöld jóla. ?eir gengu upp á hellinn og fundu þar glugga; sáu þeir þar inn Snati stekkur upp hamrastallana með Hring í rófunni.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.