Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Qupperneq 54

Eimreiðin - 01.05.1917, Qupperneq 54
H4 róið; þar með sér hún einhverja mannsmynd í bátnum. Kemur svo um síðir, að bátur þessi leggur að skipinu, og sér drotning, að það er steinnökkvi; og því næst kemur upp á skipið ógurleg tröllkona og illúðleg. Drotning varð hræddari en frá megi segja, en kemur ekki upp neinu orði, né heldur gat hún hreyft sig úr stað, til að sækja kóng eða skipverja. Tröllkonan gengur þá að drotningu og tekur af henni sveininn, og setur hann á þilfarið. Síðan tekur hún drotningu og færir hana úr öllum skrúðklæðum hennar, svo hún stendur eftir í línklæðum einum. Fer svo tröll- konan í fötjjdrotningar, og verður þá nokkurt menskumót að henni. Loksins tekur hún drotningu og setur hana á nökkvann og segir: >Mæli ég um og legg ég á, lintu hvorki ferð né flugi, fyr en þú kemur til bróður míns í undirheimum«. Sat drotning þá sem höggdofa og aðgjörðarlaus; en nökkvinn undir henni sveif þegar frá skipinu, og leið ekki á löngu, áður hann var kominn úr aug- sýn frá skipinu. Þegar ekki sást lengur til nökkvans, fór sveinninn kóngsson að hrína, og var það Jivort sem annað, að tröllkonan lagði sig lítt til að hugga hann, enda tjáði það ekki. Geklc hún þá með sveininn á handlegg sér niður undir þiljur, þar sem kóngur svaf, og vekur hann með hörðum átölum, að hann hirði ekki um, hvernig um sig fari, þar sem hún megi vera ein með son þeirra á þiljum uppi, en hann sofi og hrjóti og öll skipshöfnin með honum. Telur hún það mikla ónærgætni og ofætlun af honum. að láta engan vaka hjá sér á skipinu; því fátt segi af einum. Enda sé nú svo komið, að hún fái með engu móti huggað sveininn, og kysi því helzt, að komast þangað með sveininn, sem hann ætti að vera, og væri þess nú kostur, ef nokkur dugur eða dáð væri sýnd, þar sem kominn væri blásandi byr. Sigurði kóngi kemur það mjög á óvart, að drotning hans er svo fasmikil og harðorð, er aldrei hafði eitt móðsyrði til hans talað. Hann tekur þó ávarpi hennar með blíðu, og þykir henni mikil vorkun, þó hún sé ömruleg. Hann leitaðist við að hugga með henni sveininn; en það tjáir ekki. Fer hann þá til og vekur skipverja, og biður þá taka til segla, því nógur var byr kominn og beinn til hafna, Pví næst var siglt, sem mest mátti, og segir ekki frá ferðum þeirra, fyr en þeir komu við land, þar sem Sigurður átti fyrir að ráða. Fór hann þá til hirðar sinnar, og voru þar allir hryggir yfir fráfalli föður hans, en glöddust, er þeir höfðu hann aftur

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.