Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 61

Eimreiðin - 01.05.1917, Síða 61
I 2 I en Matthías okkar, sem bezt hefir tekist að þýða útlend skáldrit á yora tungu. V G. ÁRBÓK HÁSKÓLA ÍSLANDS 1915—1916. Rvík 1916. Við Háskólann stunduðu nám það ár 19 í guðfræðisdeild (1 af þeim kona), 10 í lögfræðisdeild (2 af þeim konur) og 30 í lækna- deild (3 af þeim kónur). Próf tóku I í guðfræði, 2 í lögfræði, 3 í læknisfræði (auk þess 4 fyrri hlutann og 8 próf í efnafræðí) og i I í forspjallsvísindum. — Til háskólans eru nú veittar úr landssjóði rúml. 70,000 kr. Aftan við Árbókina er löng ritgerð (136 bls.) »um skipulag bæja« eftir prófessor Gubmund Hannesson, sem það ár var rektor Háskólans, og í henni fjöldi mynda til skýringar. Er þar fyrst rætt um vöxt íslenzkra bæja og sjávarþorpa, hag þeirra, menningarlíf og heilbrigðismái, og því næst bæði gagnrýni á skipulagi þeirra og um endurbætur á því, og þar jafnan höfð hliðsjón af reynslu annarra þjóða í érlendum fyrirmyndarbæjum. Rítgerð þessi er harla merkileg og gæti markað stórt menningár- spor í lífi þjóðarinnar, ef hún yrði lesin af nægilega mörgum, sem ekki létú kenningar hennar sem vind um eyrun þjóta, en kappkost^ðu að færa sér þær í nýt. f’essa gerist og því meiri þörf, þar sem nú er svo komið, að fullur þriðjungur þjóðarinnar býr í bæjum og sjávar- þorpum og búast má við, að vöxtur þeirra haldi óðum áfram. Árbók Háskóláris má nú kaupa fyrir 3 kr. hvern árgang, og er hún sannariegá þess virði, ef hún flytur oft aðrar eins ritgerðir, eins og þessi er. V G. íslenzk hringsjá. MAGNUS OLSEN: VARÐLOKUR. Et bidrag til kundskap om gamrnelnorsk troiddom. (Sérpr. úr »Maai og minne« 1916, I. h.). Fræði þau eða töfrakvæði, er notuð voru við seiðinn í fornöld, eru í handritunum ýmist kölluð varðlokur eða varðlokkur, og hafa menn jafnan vefið í vafa um, hver myndin væri réttari, þó flestir hafi hallast að því,. að »varðlokkur« mriridi vera féttara og sett þá orðmynd í samband við sögnina lokka, með því að menn með söng þessara kvæða hefðu lokkað sagnaranda eða verndaranda til sín. En próf. Mágnús Ólseri álítur, að » varðlokur« sé rétta myndin, í eint. »varðloka« (sbr. sagnórðin »loka« og »lúka«), og tákni þá lokur, sem inriiloki eða lúki um andana. En varð- er stofninn í »vörðr«y sem táknar vætt éðá fylgju; óg enn er til bæði í norsku (»vord«y; »gard- vord«j »tunvord«) og sænsku (»várd« sbr. »várd-trádet«) í ýmsum myndum og samsetningum. Færir höf. margar ástæður fyrir þessari skýringu sinni, en viðvíkjandi þeim verðum vér að vísa í sjálfa rit- gerðina. V. G.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.