Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 2
66
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
IEIMREIÐIN
undinn sjálfan, en þegar fleiri bækur fóru að koma eftir
hann, varð fljólt á allra vitorði hver hann var. Eimreiðin
liefir birt allmikið eftir hann af ýmsu tagi, og þ}rkir því
hljTða að minnast hans að nokkru nú, eftir Iát hans.
Það hefir mikið verið ritað um skáldskap Guðmundar
Magnússonar, sérstaklega nú á síðustu tímum, bæði lof
og last, bæði vit og óvit, og ætlar sá, er þetta ritar, ekki
að fara að kyrja með í þeim kór. Eg ætla að eins að
segja dálítið frá manninum' Guðmundi Magnússyni, eins
og eg kyntist honum.
Til þess að kynnast manninum, þarf maður að þekkja
æfiferil hans að nokkru. Guðmundur er fæddur 12. febrúar
1873 á Rifi á Sléttu, nyrsta bæ landsins. Föður sinn
misti hann fimm ára, og fór hann og systkini hans þá á
sveitina; flultist þó til móður sinnar aftur, er hún giftist
annað sinn, og var hjá henni til 16 ára aldurs. Síðan var
hann í vinnumensku þar nyrðra þangað til árið 1891, er
hann fór til Austfjarða. Þar stundaði hann sjómensku í
hálft annað ár, en réðst síðan til Skafta ritstjóra Jósefs-
sonar, til þess að nema bjá honum prentiðn. Sumarið
1896 ferðaðist hann um Norðurland með Daniel Bruun,
en fór um haustið til Kaupmannahafnar og \ar þar í tvö
ár. Hafði hann þá fengið styrk til að kynna sér útbúnað
á leiksviðum. Hingað til Reykjavíkur fluttist Guðmundur
um haustið 1898. Á Alþingi 1903 var honurn veittur 1200
kr. styrkur til utanfarar, og ferðaðist hann árið eftir um
Þýskaland, Sviss og England. í Reykjavík stundaði Guð-
mundur ýmis störf, svo sem kenslu, verslunarstörf, en þó
aðallega prentiðn, þar til 1913, er hann varð skrifari í
Stjórnarráðinu. Á skrifstofu Alþingis var hann starfandi
fimm þing, ennfremur nokkuð í íslandsbanka.
Guðmundur kvæntist 1898 Guðrúnu Sigurðardóttur frá
Akureyri.
— Móðir mín og fjölskylda leigði í húsi Guðmundar
við Grundarstíg 15 í 5 ár, og höfðum við því nokkuð
náin kynni af honum og fjölskyldu hans. Húsið lét
Guðmundur byggja árið 1911, nokkru eftir að brunnið
hafði hús það, er hann bjó í við Þingholtsstræti 23. Eg