Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 24

Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 24
88 FRÁ KÖTLUGOSINU [EIMREIÐIfi Nú var fólk orðið óðfúst að vita um afdrif þeirra manna, er sást til í gær fyrir ofan Skálm, á hröðum flótta undan hlaupinu. Voru þar milli 20 og 30 af efni- legustu mönnum hreppsins. Um hádegi komu flestir þessir menn heim til sín. Komu þeir gangandi, því eigi var fært með hesta fyrir hrönnum. Nú mun Jón sonur minn skýra frá undankomu þeirra og lýsa hlaupinu fyrir ofan Skálm. Frásögn Jóns Gíslasonar. Eins og getið er um í frásögn föður míns, var afréttar- safnið á leið til réttar, þegar hlaupið kom. Eg var einn af 7 afrétlarmönnum, sem kom með safnið. Pegar vi5 komum fram fyrir Hrísneshólm, fórum við að heyra ni5 í vesturátt. í fyrstu var honum lítill gaumur gefinn; en svo fór hann smávaxandi, þar til við fórum að heyra óglögga dynki, sem urðu hærri og hærri, og loks heyrðum við drunur miklar. Vorum við þá komnir svo nærri rélt- inni, að við sáum hvar menn þeir, sem þar voru, hleyptu þaðan á hestum sínum sem harðast. í sama bili sáum við að þeir, sem voru að safna úthagana, fóru austur alt hvað af tók, og stefndu þeir til Skálmabæjarhrauna. Duldist okkur nú ekki, að eitthvað óvenjulegt var á seiði. En svo hagaði til, að við rákum safnið eftir sandlæg5 nokkurri, og voru hraunhálsar heggja vegna, svo að vift sáum ekkert til vesturs. í sama svip og við sáum til þeirra manna, er hröðuðu sér heimleiðis, varð mér litið aftur. Mun mér lengi minnisstæð sjón sú, er mér bar þá fyrir augu. Var þá að geisast fram að baki okkur jökulhlaup mikið og ægilegt, sem brunaði fram lægðina milli hraun- hálsanna. Geri eg þá félögum minum aðvart sem skjótast. Sáum við nú okkur þann kost vænstan, að yfirgefa safnift og ríða sem hraðast undan hlaupinu. F'órum við nú sem við máttum, og stefndum suður á Ljósavatnaháls. Þegar þangað kom, sáum við að hlaupið var komið austur úr Skálminni fyrir sunnan okkur; var því eigi fært að halda lengur þá leið. Breyttum við þá stefnu og héldum nú » áttina til Skálmabæjarhrauna, því þar sáum við að saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.