Eimreiðin - 01.04.1919, Blaðsíða 33
EIMREIÐIN]
FINNS JÓNSSONAR
97
burði við pað, er Torfl skólasijóri gerði par siðar, eins og mörg-
um er kunnugt.
Pau árin, sem Jón bjó á Óspakseyri, starfaði hann að ýmsum
jarðabótum. Bygði par timburkirkju í stað gamaliar torfkirkju,
er par var áður. Hann fylgdist vel með almenningsmálum og
var besti styrktarmaður alls pess, er til framkvæmda horfði og
hann áleit rétt vera. í landsmálum var hann áhugamikill og ætíð
tryggur flokksmaður Jóns Sigurðssonar. Þegar Hrútfirðingar
héldu 1000 ára minninguna á Reykjatanga 1874, gekst hann fyrir
samskotum til sæmdar Jóni Sigurðssyni, og sá eg pað í bréfi frá
Jóni Sigurðssyni, að hann mat pað vel.
Oft pótti mönnum skemtilegt að spjalla við Jón Bjarnason.
Hann var fjörugur og fór ekki dult með skoðanir sínar, og pótti
pá sumum hann vera nokkuð berorður og ekki ætíð laus við
hnýfilyrði, og veitti einatt létt að koma fyrir sig orði. Mest pótti
honum varið i pað, ef hann var gerður orðlaus með hógværum
tilsvörum. Hann gat pess t. d., að Pétur biskup hefði eitt sinn
svarað sér pannig. Peir voru eitthvað samferða, sem eg man
■ekki hvar var. Ræddu peir pá um trúmál, pví Jón var trúmaður.
Pá var nýkominn út »Vísdómur englanna« eftir Svedenborg, og
spyr Jón biskup, hvað hann segi um pá bók. Biskup svarar fáu,
en nefnir bókina »grillur« og heilaspuna, en Jón var búinn að
fá gott álit á bókinni, og eftir pví sem eg pekti bráðlyndi hans,
pá hefir honum mislíkað svar biskups, en um pað leyti voru
komnar út flestar lestrarbækur Péturs biskups. Svarar pá Jón:
»Já, hvað sem um pað er, pá er »Vísdómur englanna« sú bók,
sem eg hefi haft mest gott af«. Svarar pá biskup: »Gætið pér að
pví, Jón minn, að peim verður alt til góðs, sem guð elska«. Pá
sagðist Jón hafa orðið orðlaus.
Jón var úrræðagóður og skjótráður, ef með purfti. Sem dæmi
skal eg setja hér sögu, er hann sagði mér.
Pað var sumar eitt, pá er laxakaupmaður, James Ritchie frá
Skotlandi, er mörgum var að góðu kunnur, var hér við land og
keypti af mönnum lax o. fl. og flutti út með sér að haustinu, að
peir Jón og Ritchie sömdu um pað, að Jón seldi Ritchie fé til
slátrunar og ræki pað suður á Akranes og væri pví slátrað par.
Tæki kaupm. par mör, gærur og kjöt, en slátrið ætlaði Jón að
selja öðrum. Kom peim saman um verð, en á kjötinu átti að
vera mismunandi verð, eftir pyngd kroppa á hverri vigt. Ritchie
lofaði að hafa tilbúin öll áhöld og hjálp við slátrunina, Jóni að
kostnaðarlausu, pegar hann kæmi suður með féð. Fara nú ekki
sögur af pví, fyr en að Jón er lagður af stað með féð um haustið
og kominn'suður í Borgarljörð. Fréttir hann pá, að hreppstjór-
inn á Akranesi hafi bundist samtökum við hreppsbúa sína, að
kaupa ekki slátur af Jóni, nema fyrir lágt verð. Semur pá Jón
7