Tölvumál - 01.10.1988, Síða 5

Tölvumál - 01.10.1988, Síða 5
undirstöðuþekking er afburða góð hjá nemendum í þessum löndum. Til dæmis skara nemendur frá þessum heimshluta oftast fram úr á ólympíuleikum ungs fólks í eðlisfræði og stærðfræði. Þessum ríkjum hefur hins vegar ekki tekist að tengja hina miklu fræðilegu þekkingu við hagnýta framleiðslu. Þrátt fyrir ótal rannsóknarstofnanir, fjöl- marga vísindamenn sem eru í fremstu röð og miklar fjárveitingar er því nú haldið fram að afrakstur þessa alls sé óverulegur. Yið Vestur- landabúar eigum að minnsta kosti ekki erfitt með að þekkja hina hefð- bundnu austantjaldsframleiðslu frá því sem framleitt er í okkar heims- hluta. Af þessari reynslu getum við lært að engin trygging er fyrir því að fjármagn sem eytt er í háskólamenntun skili sér í aukinni þekkingu í atvinnulífinu. Skólar sem brúa bilið á milli hefðbundins handverks og fræðilegs háskólanáms eru nauðsynlegur hlekkur í menntakeðjunni. Þá verður að sjá til þess að fyrirtækjum og stofnunum sé gert kleift að fjárfesta í þekkingu starfsfólks og vinna að símenntun þess. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því í hverju þekkingin felst. Það er til dæmis ekki fjárfesting í þekkingu að kaupa tölvu. Þekkingin felst í því að starfsfólkið kunni að nota hana til að skila betra starfi. Á íslandi vinna sennilega 15 þúsund manns eða fleiri daglega við tölvuskjái. Árlega kosta fyrirtæki og stofnanir hátt í 5 milljörðum króna til kaupa og reksturs á tölvuvæddum upplýsingakerfum. Tölvur eru orðnar mjög útbreiddar í atvinnulífinu. Ganga má að því sem vísu að hátt í 4 þúsund lítil fyrirtæki noti einmenningstölvur til að færa bókhald, reikna út laun og leysa önnur verkefni á skrifstofum sínum. Mörg fyrirtæki nota tölvur sínar ekki á heppilegasta hátt. Sum hafa jafnvel ekki haft annað en kostnað og óþægindi upp úr tölvuvæðingunni. Undanfarið hefur verið mikið rætt um rekstrarerfiðleika fyrirtækja hér á landi. Flest af hinum þekktari gjaldþrota fyrirtækjum voru þokkalega tölvuvædd að því er best er vitað. Ekki hefur verið sýnt fram á að tölvuvæðing hafi skipt sköpum um afkomu fyrirtækja. Ef við íslendingar ætlum okkur að laga upplýsingatæknina að okkar þörfum verðum við að haga menntunarmálum okkar þannig að þekkingin komist greiðlega til þeirra sem nota tölvurnar í sínu starfi. Flestir þeirra hafa þegar lokið skólagöngu sinni og eiga ekki eftir að innrita sig í tölvunám í háskóla. Menntunina verður að færa til almennra starfsmanna fyrirtækja og stofnana og stjórnenda þeirra. Stefán Ingólfsson. 5 TÖLVUMAL

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.