Tölvumál - 01.10.1988, Side 16
vinnubrögð við tölvunotkun eru oftast að verulegu leyti frábrugðin því,
sem áður gerðist. Stundum eru þessar breytingar mjög kostnaðarsamar.
Það er algengt að jafnvel þó ekki hafi verið uppi áform um að breyta
húsnæði fari umtalsverðar breytingar fram fljótlega eftir tölvukaup.
Leggja þarf rafleiðslur að tölvutækjum. Ekki er víst að unnt sé að
nota gamlar rafleiðslur. Stundum getur jafnvel þurft að breyta stofn-
lögnum. Oftast fylgja einhverjar breytingar á húsnæði tölvuvæðingunni.
Þegar röskunin er mest þarf að breyta herbergjaskipan, innrétta sérstakt
tölvuherbergi og gera fleiri breytingar.
Jafnvel þótt ekki sé um miklar breytingar að ræða fylgir því kostnaður
að koma fyrir leiðslum og köplum eða setja upp hillur svo dæmi séu
nefnd. Þegar lagðir eru stokkar fyrir kapla þarf oft að brjóta göt á
veggi. Sama máli gegnir um raflagnir. Þeim geta fylgt breytingar á
innréttingum.
Reynslutími
Flestir þekkja sögur af erfiðleikum, sem komið hafa upp, þegar ný
viðamikil tölvukerfi hafa verið tekin í notkun. Á síðustu árum hafa
menn lagt sig fram um að undirbúa sig af kostgæfni til að breytingin
verði sem átakaminnst. Algengt er að smágallar í hugbúnaði, sem ekki
fundust við kerfisprófanir, komi í ljós þegar hugbúnaðurinn er tekinn
í notkun. Fyrstu vikurnar þarf starfsfólk að ná tökum á nýjum vinnu-
brögðum. Reynslan sýnir að reikna verður með því að ýmiskonar kostn-
aður verði við að taka hugbúnað í notkun. Óvænt vandamál koma upp
fyrirvaralítið og höfundar hugbúnaðarins geta ekki sleppt hendinni af
kerfunum fyrr en þau eru farin að vinna áreynslulaust. Afköst starfs-
fólks á reynslutímanum eru minni en síðar verður þegar full reynsla
er komin á hugbúnaðinn. Eigandi hugbúnaðarins upplifir þessa erfiðleika
sem ófyrirséðar greiðslur til verktaka aukna yfirvinnu hjá starfsfólki
og jafvel röskun á starfsemi fyrirtækisins. Kostnaðurinn, sem af því
hlýst er raunverulegur þótt erfitt geti verið að lesa hann sem ákveðna
fjárhæð í bókhaldi.
Upplýsingahagfræði
Tölvusalar eru ekki á einu máli um hvaða aðferðir skuli nota við að
meta stofnkostnað og rekstrarkostnað upplýsingakerfa. Sumar tölvugerðir
eru ódýrar í kaupi en kostar mikið að halda við og reka. Með aðrar
gerðir er þessu öfugt farið. Kostnaður við hugbúnað er breytilegur frá
einum tölvuframleiðanda til annars. Mikið er fáanlegt af stöðluðum
hugbúnaði fyrir sumar tölvugerðir en minna fyrir aðrar. Af því sem
hér hefur verið sagt er ljóst að það getur haft áhrif á hagkvæmnismat
16 TÖLVUMÁL