Tölvumál - 01.11.1995, Page 3
Efnisyfirlit
5 Frá formanni
Haukur Oddsson
6 Frá orðanefnd
Stefán Briem
7 Á vit framtíðar með öflugri
upplýsingatækni
Guðbjörg Sigurðardóttir
10 Kvennalistinn framarlega í
upplýsingabyltingunni
Anna Ó. Bjömsson
11 Alþýðuflokkurinn og
upplýsingatæknin
Jón Baldvin Hannibalsson
13 Er þjóðfélagið markaðsvara í
upplýsingaiðnaði?
Stefán Ingólfsson
16 Stuðningur Rannsóknaráðs við
upplýsingatækni
Vilhjálmur Lúðvíksson
21 Upplýsingaiðnaður sem
atvinnugrein
Þorsteinn Garðarsson
24 Upplýsingatækni og
stefnumörkun
Guðmundur Ásmundsson
25 Upplýsingatækni í atvinnulífinu
Þorkell Sigurlaugsson
28 Ráðstefna um skólastarf og
upplýsingatækni haustið 1996
29 Útflutningur upplýsingatækni
Þórarinn Stefánsson
31 Stjórnsýsluhugbúnaður er
útflutningsvara
Jón Þór Þórhallsson
---------------------------------------------------
Ritstjórnarpistill
Á góðri stundu er því stundum haldið fram að með
því að nýta sér mikla og góða menntun þjóðarinnar
sé hægt að skapa hér fjöldamörg ný störf í
upplýsingatækni ætlaðri til útflutnings. Það geti mjög
líklega orðið helsti vaxtabrodduratvinnulífs hérá landi
og stuðlað að bættum hag landsmanna. En þegar
kemur að því að móta heildarstefnu sem styður við
bakið á þessum iðnaði eða samræma reglur hér að
því sem gerist í nágrannalöndunum til að bæta
samkeppnisstöðu þá verður einhverra hluta vegna
þetta málefni útundan. Kannski telja stjórnvöld að það
sé í réttum farvegi. Mögulega er um að ræða kunnáttu
-eða áhugaleysi - eða bæði. Eða er það stefnan að
skipta sér sem minnst af atvinnustarfsemi á sviði
upplýsingatækni, láta hana þróast og dafna af eigin
rammleik?
Þess var farið á leit við ýmsa opinbera aðila sem
málið varðar að þeir segðu frá því sem þeir hafa verið
að gera að undanförnu og hvað væri á prjónunum.
Haft var samband við þá stjórnmálaflokka sem sæti
eiga á Alþingi og þeir beðnir að lýsa stefnu sinni í
upplýsingatækni. Ekki reyndist stefnan tiltæk hjá öllum
flokkum. Að auki var haft samband við nokkra aðila
sem stunda útflutning á upplýsingatækni og þeir
beðnir að segja frá því sem þeir eru að gera.
í stuttu máli er hér reynt að draga fram stefnu og
strauma í upplýsingatækni. Það er svo eftirlátið
lesendum að meta hvort hér kemur fram rétt stefna
eða hvort sú staða sem hér er lýst er raunverulega
staðan í dag. Sérstaklega væri áhugavert að heyra
hvort félagar í Skýrslutæknifélaginu hafi einhverja
skoðun á þessu málefni.
Magnús Hauksson
v_____________________________________________V
TÖLVUMÁL
TímaritSkýrslutæknifélag íslands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf.
Auglýsingar:
Átak hf., S. 568 2768
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Magnús Hauksson
Aðrir ritnefndarmenn:
Bergþór Skúlason
Gísli R. Ragnarsson
Umbrot: Svanhildur Jóhannesdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi Islands.
Tölvumál - 3