Tölvumál - 01.06.1997, Page 3
Ritstjórnarpistill
í þessu þriðja tölublaði Tölvumála 1997 er
bryddað á þeirri nýjung að helga blaðið nánast
eingöngu kynningarefni frá fimm tölvusölum, þ.e.
Apple umboðinu, Digital á íslandi, Einari J.
Skúlasyni, Nýherja og Opnum kerfum. Hvert
þessara fyrirtækja fær aðgang að blaðinu með
kynningarefni um þann tölvubúnað (biðlara og/
eða miðlara) sem það býður á markaðnum.
Lesandinn þarf að sjálfsögðu að hafa það í huga
þegar hann les greinarnar að þær eru skrifaðar
af seljanda viðkomandi vöru en ekki af óháðum
aðila. Það er engu að síður trú ritstjórnar blaðsins
að umfjöllun sem þessi sé áhugaverð fyrir les-
endur (Dess og gefi á þægiiegan hátt aðgang að
fróðlegum upplýsingum um þann tölvubúnað
sem viðkomandi fyrirtæki hafa að bjóða. Þar sem
mikili fjöldi fyrirtækja starfar á þessum markaði
var útilokað að bjóða þeim öllum aðgang að
þessu blaði en ákveðið að bjóða fimm stærstu
fyrirtækjunum að fjalla um þann tölvubúnað sem
þau bjóða einnig vegna þess að þau eru um-
boðsaðilar nokkura stærstu tölvuframleiðenda
heims hér á landi.
Samkvæmt dagatalinu hefur sumarið nú
gengið í garð og viljum við í ritstjórn Tölvumála
því óska öllum lesendum blaðsins gleðilegs
sumars. Að venju tekur ritstjórnin sér frí yfir
sumarið en kemur aftur til starfa í haust, hvíld
og endurnærð. Þetta tölublað sem nú kemur út
er því síðasta tölublað fyrir sumarfrí.
Gísli R. Ragnarsson
TÖLVUMÁL
Tímarit Skýrslutæknifélag Islands
Tölvumál er vettvangur umræðna
og skoðanaskipta um upplýsinga-
tækni sem og fyrir málefni og
starfsemi Skýrslutæknifélagsins.
Óheimilt er að afrita á nokkurn
hátt efni blaðsins að hluta eða í
heild nema með leyfi viðkomandi
greinahöfunda og ritstjórnar.
Blaðið er gefið út 6 sinnum á ári í
1.100 eintökum.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Aðsetur:
Barónsstígur 5
101 Reykjavík
Sími: 551 8820
Bréfsími: 562 7767
Heimasíða SÍ:
http://www.skima.is/sky/
Netfang: sky@skima.is
Ritstjóri og ábm.:
Gísli R. Ragnarsson
Aðrir í ritstjórn:
Agnar Björnsson
Einar H. Reynis
María Ingimundardóttir
Ólöf Þráinsdóttir
Umbrot: Svanhildur Jóhannesdóttir
Áskrift er innifalin í félagsaðild að
Skýrslutæknifélagi íslands.
EFNI
5 Frá formanni:
Erlent samstarf
HaukurOddsson
6 HP Unix vélar - Inn í nýja öld
Sigurður Örn Gunnarsson
9 Staðall í bundnu máli
10 Kostnaður við rekstur tveggja
stýrikerfa tölvuneta
Sigurður Másson
13 Framsækni NCR vekur athygli
Skúli Valberg Ólafsson
15 Frá orðanefnd
Stefán Briem
17 Öryggi tölvu- og
upplýsingakerfa
Rúnar Karlsson
21 Tölvuumhverfi fyrir næsta
áratug
Helgi Örn Viggósson
27 Nettölvuhögun Oracle
Elvar Steinn Þorkelsson
30 Breytt hlutverk PC netþjóna í
nútíma netkerfum
Jón Bjarki Gunnarsson
32 IBM Sysíem/390 - Stórtölvur
Hjálmtýr Guðmundsson
33 Hraðbraut 64 frá iBM
Heimir Erlingsson
Tölvumál - 3