Tölvumál - 01.06.1997, Blaðsíða 15
TÖLVUMÁL
Frá orðanefnd
Effir Slefón Efem
Orðanefnd hefur nýlega gengið
frá nokkuð heillegum ensk-
íslenskum lista yfir heiti hugtaka í
hlutbundinni hugbúnaðargerð.
Starfsmenn hjá Vátryggingafélagi
Islands áttu frumkvæði að því í
fyrra að þessi hugtök voru tekin
sérstaklega fyrir í orðanefnd og
hefur nefndin notið aðstoðar þeirra
auk tölvunarfræðikennara í Há-
skóla Islands. Orðanefndin ber þó
alla ábyrgð á því hvaða íslensk
heiti urðu ofan á. Aðgangur er að
þessum orðalista um heimasíðu
Tölvuorðasafns. Hér verður nú
fjallað um fáein heiti á listanum
sem hafa valdið töluverðum heila-
brotum.
Gagnaleiðarit eða
gagnaflæðirit?
Á listanum yfír hlutbundin hug-
tök eru meðal annarra þessi:
data flow gagnagangur, gagna-
flæði
data flow diagram gagnaleiðarit,
gagnaflæðirit
Data flow diagram hefur
samheitin data flowchart og data
flow graph. Orðanefnd mælir með
íslenska heitinu gagnaleiðarit en
gefur sem samheiti gagnaflœðirit,
meðal annars vegna þess hve mikið
það heiti er notað. Þó að enska
orðið flow merki oft einhvers
konar ‘flæði’ eða ‘streymi’ þá
virðist orðanefnd að á gagnaleiða-
riti sé frekar verið að sýna hvaða
leið gögn fari. Ef gögnin berast ört
og í miklu magni eftir leiðunum
getur ef til vill verið eðlilegt að tala
um flæði gagna en þannig háttar
þó ekki alltaf til. Við val á íslensku
heiti reynir orðanefnd frekar að
fara eftir skilgreiningu hugtaks en
að þýða orðrétt erlent heiti þess.
Þess má einnig geta að Danir nota
um þetta hugtak heitið datarute-
diagram sem samsvarar nokkuð
nákvæmlega íslenska heitinu
gagnaleiðarit.
Fyrir data flow nota Danir hins
vegar heitið datastrpm og fyrir
Tölvuorðasafnið 1986 valdi orða-
nefnd heitið gagnastreymi. Skil-
greining hugtaksins er fengin frá
Alþjóðasambandi staðlastofnana
og er nú í þýðingu orðanefndar
þannig: „Flutningur gagna gegn-
um virka h\uta gagnavinnsiukerfis
á meðan tiltekið verk er í vinnslu“.
Orðanefnd er ekki fyllilega sátt við
heitið gagnagangur en fann ekkert
skárra sem fellur að þessari skil-
greiningu. Hér með er auglýst eftir
betra íslensku heiti.
Náskyld hugtök eru:
control flow inningarleið, fram-
kvæmdarleið
control flow diagram, control
flow graphinningarleiðarit
Inningarleið er sú röð sem for-
ritssetningar eru inntar í eða geta
verið inntar í. Frakkar kalla þetta
hugtak diagramme de contrðle
eða graphe de contrðle. Þar er
ekkert minnst á flæði.
Hlutur eda vlðfang?
Enska orðið object hefur fjöl-
breytilega merkingu. Algengasta
merkingin er sennilega ‘áþreifan-
Frh. á nœstu síðu
Frh. afbls. 13
ýmsum fleiri þáttum sem auka
stórlega á rekstraröryggi vélar-
innar (High-availability). Hægt er
að tengja saman vélar í klasa (clus-
ter) og samnýta afl allt að 4.096
örgjörva. NCR býður Lifekeeper
hugbúnað fyrir NT og UNIX, sem
tryggir 99,9% uppitfma og aðstoð-
ar við endurheimt gagna og við-
fanga eftir aflmissi. Þannig má
setja t.d. tvær vélar í klasa og láta
aðra taka við af hinni um leið og
bilunar verður vart.
Mörg fyrirtæki og stofnanir
hafa sýnt NCR WorldMark áhuga
og meðal annarra hafa Islenskar
sjavarafurðir og Hagkaup tekið
slíkar vélar í sína þjónustu. Nánari
upplýsingar er að finna á EJS
vefnum www.ejs.is. •
Skúli Valberg Olafsson er
aðstoðarforstjsóri EJS hf.
JÚNÍ1997 - 15