Tölvumál - 01.06.1997, Qupperneq 16
TOLVUMAL
legur hlutur’. í málfræði merkir
object hins vegar ‘andlag’ en í
heimspeki ‘viðfang’. í almennri
merkingu á viðfang eða viðfangs-
efni einnig oft betur við en hlutur.
Fá erlend heiti hafa verið oftar eða
lengur til umræðu í orðanefnd en
object og hvaða íslensk heiti geti
samsvarað því.
Ef við lítum á önnur tungumál
þá er t.d. í frönsku merking orðsins
objet og í dönsku merking orðsins
ting næstum jafnfjölbreytileg og
orðsins object í ensku. íslenska
orðið hlutur er reyndar frá upphafi
notað um óáþreifanleg fyrirbæri.
I upplýsingatækni er oft álitamál
hvort nota eigi orðið hlutur eða
viðfang. Þetta á meðal annars við
í hlutbundinni hugbúnaðargerð eða
hlutbundinni forritun.
Þegar orðanefnd hóf vinnu sína
við hugtökin í hlutbundinni hug-
biinaðargerð í fyrra var hún á
þeirri skoðun að heitið viðfang ætti
betur við en hlutur og viðfanga-
forritun væri betra heiti en hlut-
bundin forritun fyrir object-ori-
ented programming. Eftir miklar
umræður og að fengnu áliti tölvun-
arfræðikennara í Háskóla Islands
var þó virðingarröðinni snúið við
og hlutur sett sem aðalheiti en
viðfang sem samheiti.
Hlutimir í hlutbundinni forritun
hafa oft áþreifanlega hluti sem
fyrirmynd, sem þeim er líkt við,
en svo er þó alls ekki alltaf. Fyrir-
myndin getur til dæmis verið reið-
hjól en hún getur líka verið fundur.
í þessum fræðum þarf að nota
sameiginlegt heiti fyrir hvort
tveggja. Og hlutur skal það heita
en þó má blóta á laun og heimilt
vera að kalla fyrirbærið viðfang
kjósi einhver það frekar. Þessi heiti
eru meðal annarra á fyrrnefndum
lista:
object hlutur, viðfang
object interaction gagnvirkni
hluta, gagnvirkni viðfanga
object model hlutalíkan,
viðfangalfkan
object-oriented, OO hlutbundinn,
viðfanga-
Kviklegur og
kyrrlegur
Á listanum yfir heiti hlutbund-
inna hugtaka eru nokkur samsett
heiti þar sem ensku lýsingarorðin
dynamic og static koma fyrir.
Orðanefnd ákvað að leggja til að
þessi ensku lýsingarorð yrðu þýdd
með kviklegur og kyrrlegur en
einnig mætti nota forliðina/cv/k- og
kyrr- eftir því sem mönnum þætti
fara betur hverju sinni. Utkoman
varð þessi:
dynamic bindingkvikleg binding,
kvikbinding
dynamic model kviklegt líkan,
kviklíkan
dynamic typing kvikleg tögun,
kviktögun
static binding kyrrleg binding,
kyrrbinding
static typing kyrrleg tögun,
kyrrtögun
Stefán Briem er ritstjóri
Tölvuorðasafns og starfs-
maður orðanefndar Skýrslu-
tœknifélags Islands.
Netfang: stefan @ ismal. hi. is
Veffang Tölvuorðasafns:
http://www. ismal. Iii. is/to/
Punktar...
Fann föður sinn
með aðstoð
Netsins
Þann 28. apríl hringdi rúm-
lega fertugur íslendingur í
mann sem hann hefur ekki séð
síðan hann var tveggja ára. Sá
sem svaraði var faðir manns-
ins, búsettur á vesturströnd
Bandaríkjanna og þar með var
langri leit lokið og samband
komið á milli sonar og föður,
eina barns hans.
Árangur þennan er meðal
annars að þakka leitarvélum
og símaskrám á Internetinu.
Ættarnafn viðkomandi er
sjaldgæft og eftir nokkrar til-
raunir til að hafa uppi á ætt-
ingjum föður mannsins fann
hann bróðir hans á Netinu og
þaðan á áfangastað. íslending-
urinn hafði áður reynt að nota
hefðbundnar leiðir til þess að
finna föður sinn en tæknin kom
til aðstoðar í þetta sinn, með
þessum frábæra árangri.
Hitaveita
Reykjavíkur
Grensásvegi 1
Sími: 560 0100
16 - JÚNÍ1997