Tölvumál - 01.06.1997, Page 21
TOLVUMÁL
Tölvuumhverfi fyrir næsta
áratug
- með DIGITAL Alpha miðlurum
Effir Helaa Öm Vaaósson
Nýjungar í högun upplýsinga-
kerfa, sem hafa verið að þróast
undanfarin ár, lofa meiri gæðum á
sama tíma og þær gefa kost á að
lækka kostnað/verulega. Nú þegar
ekkert stenduríí vegi fyrir að menn
geti byrmð ,að nýta sér afurðir
þessarar þróunar er ráð að skoða
hvemig vænlegast væri að fjárfesta
í kerfum sem sigla á með inn í nýja
öld.
í greininni ætla ég að endur-
haga tölvukerfi framsækins fyrir-
tækis sem ætlar sér að nýta upp-
lýsingatæknina til hins ítrasta í
þágu aukins hagnaðar og styrkari
samkeppnisstöðu. Um er að ræða
gervifyrirtæki með 100 notendur
og, í samræmi við ofangreinda ætl-
un, gerir það miklar kröfur til
gæðakerfisins en komum að því
síðar.
Ekki er úr vegi að líta aðeins
til baka þó ekki lengra en til síðasta
áratugar til að glöggva sig á hvað
hefur rekið okkur í þá stöðu sem
við erum í nú.
Kostnaður úr böndum
Fyrir u.þ.b. áratug kvörtuðu
menn sáran yfir því hvað stóru
miðlægu tölvurnar væru dýrar og
áttu þá aðallega við kaupverð vél-
og hugbúnaðar og viðhaldsgjöld.
Undir lok síðasta áratugar tóku
margir til þess ráðs, undir því yfir-
skini að spara, að skipta þeim
alfarið út fyrir net af PC-vélum.
Fleiri héldu stóru vélunum þó inni
en í þeim tilvikum komu fljótlega
í stað skjánna á skrifborðunum
PC-vélar og færðust viðföng, eins
og t.d. ritvinnsla, og töflureiknir á
þær en skjáhermar notaðir fyrir
aðgang að miðlægu viðfangskerf-
unum. Næsta skref var svo biðlara/
miðlara högun þar sem hlutverk
þeirra stóru breyttist gjaman í að
vera gagnasafnsmiðlarar, á meðan
PC-vélamar sáu um notendaskilin
og rökhluta viðfangskerfanna,
þ.e.a.s. 2ja laga biðlara/miðlara
högun.
Rétt er að stóru tölvurnar voru
rándýrar og allur búnaður í kring-
um þær ef við berum saman við
það sem gerist nú. Fyrir hálft
óframreiknað verð VAX 11/750
sem keypt var fyrir 12 ámm fæst
nú AlphaServer sem hefur ríflega
1000-föld gjörvaaflcöst. En þrátt
fyrir þetta hefur eignarhalds-
kostnaður heildar tölvuumhverfís-
ins aukist verulega.
Kostnaðarbólgan liggur í PC-
vélunum sem er að finna á hverju
skrifborði í flestum fyrirtækjum. í
einni mest tilvísuðu skýrslu sem
Gartner Group hefur gefið út,
kemur fram að heildar eignar-
haldskostnaður hverrar PC-vélar
í bandarísku stórfyrirtæki, yfir 5
ára tímabil, er um 2.8 milljónir
íslenskia króna. Eins og gengur
véfengja mai'gir þessa tölu og segja
hana allt of háa, en af henni eru jú
43% kostnaður sem venjulega
kemur ekki fram í bókhaldi á
„réttum" stað. Sumir telja hana þó
of lága, meira að segja þeir hjá
Intel eftir ítarlega innanbúðar-
könnun.
Eitt er víst, flestir eru sammála
því, að þessi kostnaður er langt
fyrir ofan skynsemismörk, hver
sem hann er nákvæmlega.
Það liggur sem sagt í augum
uppi hvar meinið liggur. PC-vélin,
eða „feiti“ biðlarinn, er orðinn of
frekur til fjársins og verður því að
endurskoða hlutverk hans í fyrir-
tækinu.
Megrunarkúrinn mun felast í
nokkrum samvinnandi stefnum.
Þar ber fyrst að nefna þriggja laga
biðlara/miðlara högunina, net-
tölvuhögunina (Network Comput-
ing Architecture) og NetPC, þ.e.
svar Microsoft og Intel við þeirri
ógn sem þeir sjá í nettölvunni og
gengur út á að stórlækka eignar-
haldskostnað af Wintel höguninni.
NetPC er sem sé niðurskorin disk-
laus PC, svipuð þeim nettölvum
sem kynntar hafa verið, nema hvað
Windows 95/NT er stýrikerfið og
gjörvarnir Intel Pentium eða DIG-
ITAL Alpha. Aðalpunkturinn í
NetPC er kannski að DMI 2.0
(Desktop Manageinent Interface)
er til staðar sem þýðir að fjarstýra
má henni á alla kanta, meira segja
slökkva og kveikja frá stjórnstöð.
JÚNÍ1997 - 21