Tölvumál - 01.06.1997, Side 22
3ja laga biðlari/miðlari
T O L V U
M Á L
Skipta má langflestum við-
skiptalegum viðfangskerfum í 3
hluta eða lög: notendaskil, rökhluta
(úrvinnslu gagna) og gagnasafns-
kerfið. Með því að skipta við-
fangskerfunum upp eftir þessu lík-
ani vinnst margt:
• Sveigjanleiki stóreykst.
• Hægt er að dreifa rökhlutum
um tölvur umhverfisins og
keyra hvem þeirra þar sem best
hentar.
• Fyrir tilstilli miðjubúnaðar, þ.e.
hlutbundinna forrita miðlara
(object request broker, t.d.
CORBA eða DCOM), má
dreifa sömu rökhlutum á marga
viðfangamiðlara og ná þannig
fram álagsdreifingu og auknu
rekstraröryggi.
• Hugbúnaðargerð verður auð-
veldari til lengri tíma litið.
• Kostur gefst á að keyra aðeins
notendaskilin á PC/Nettölvunni
sem minnkar kröfurnar til
notendabúnaðarins.
Sem sagt: 3ja laga högunin
býður upp á mikla hagræðinga-
kosti og er forsendan fyrir „mjóa“
biðlaranum.
Auðvelt er að þróa 3ja laga við-
fangskerfi núorðið þar sem flest
biðlara/miðlara þróunartól á
markaðnum styðja það. Reyndar
var hið íslenska LOUIS frá Softís
meðal þeirra fyrstu.
Nettölvuhögunin
í megin atriðum snýst nettölvu-
högunin (NCA) ekki um einhvem
áþreifanlegan hlut sem kallaður er
nettölva. Hér er frekar um að ræða
hugbúnaðarhögun, sem saman-
stendur í grundvallaratriðum af
helstu TCP/IP prótókólunum og
þjónustum, Java-umhverfi, vef-
skoðara o.fl. eða helstu afurðir
Intemet-sprengingarinnar miklu.
Nettölvan, þ.e. áþreifanlegi
hluturinn, er engan veginn njörvuð
föst niður í skilgreiningum þannig
að menn hafa nokkuð frjálsar
hendur með hönnun sjálfs vélbún-
aðarins svo framarlega að hann
styðji þá hugbúnaðarhögun sem
áður var nefnd. Af gjörvaafli má
gera ráð fyrir að dæmigerðar net-
tölvur verði svipaðar og meðal
PC-tölvur. En lykilatriðið, sem
mun gera þær hagkvæmari í
rekstri, er að þær munu almennt
ekki hafa harðan disk heldur
munu sækja allan
viðfangshugbúnað og gögn frá
miðlurum þannig að allt hug-
búnaðarviðald hvað þær varðar
er miðlægt.
Opinbert meginmarkmið með
NCA er að stórlækka kostnað
við rekstur tölvuumhverfisins.
Gera má ráð fyrir að hver
nettölva í umhverfinu verði jafn
létt í rekstri og VT skjáimir voru
í gamla daga án þess þó að hinn
almenni notandi þurfi að fórna
myndrænu notendaskilunum sem
hann er orðinn vanur. Fyrir-
svarsmenn NCA halda því fram
að heildar eignarhaldskostn-
aðurinn við nettölvurnar verði
um 20% af því sem PC-vélarnar
kosta.
Aætla má að nettölvan komi
til með að fullnægja þörfum 90-
95% starfsmanna í dæmigerðu
viðskiptaumhverfi. Afgangur-
inn, þ.e.a.s. ofurnotendurnir, sem
eru t.d. að vinna við hugbúnaðar-
þróun, flókna gagnagreiningu eða
grafíska hönnun halda áfram að
nota fullbúnar vinnustöðvar.
Líklegt verður að teljast að
nettölvan eigi eftir að ná verulegri
útbreiðslu í fyrirtækjum á næstu
árum. Stuðningurinn við hana af
hálfu aðila iðnaðarins er mjög
mikill. Nær allir helstu framleið-
endur eru þar á meðal, en fremstir
í flokki eru Oracle, IBM, Sun,
Netscape og Corel.
Mikið af hugbúnaði fyrir NCA
streymir nú á markaðinn. Ber þar
helst að nefna biðlara/miðlara
þróunarhugbúnað frá mörgum af
helstu framleiðendum slíks bún-
aðar sem í ófáum tilvikum gerir
það að verkum að ekki þarf annað
en að endurþýða viðfangskerfi til
að þau keyri á nettölvum. Þá er á
A1 taVista Firewall
10 x Windows NTWS
AS 800 RA310 AS 800 Alphaserver
Alphaserver
4000 100 MB Memory Channel 1000A
DIGITAL Cluster for WNT DIGITAL UNIX TruCIuster
Mynd 1. Fyrinnyndar stofnkerfi byggt á tveimur klösum af AlphaServer miðlurum, annarsvegar Windows NT
Qf> hinsvegar PÍRÍtal UNIX. I senn er það mjög afkastamikið, bilanaþolið, sveigjanlegt og ódýrt í rekstri.___
Hlutverkaskipanin í dœminu okkar er þessi:
A: gagnasafnskerfi (lag 3), viðfangakerfi (lag 2), varavél f. þjónusturá B. B: vöruhús gagna, OLAP,
intranet/NC-miðlari, viðfangakerfi (lag 2), ORtí, DCE, Legato Networker afritunarmiðlari, varavélf.
þjónustur á A. C: skráa- og prentaraþjónusta, viðfangakerfi (lag 2), intranet/NC-miðlari, hópvitinuketfi,
varavél f. þjónustur á D. D: viðfangakerfi (lag 2), ORB, DCE, póstmiðlari, varavél f. þjónustur á C.
22 - JÚNÍ1997