Tölvumál - 01.06.1997, Side 25
T
véla og dreift þannig álaginu. Ef
ein vél dettur út af einhverjum or-
sökum falla þær þjónustur sem í
gangi voru á henni sjálfkrafa yfir
á aðraklasameðlimi. I stofnkerfinu
okkar geta allt að tvær vélar verið
niðri (t.d. ef uppfæra á stýrikerfi),
ein í hvorum klasa, án þess að
nokkur þjónusta sé úti.
UNIX-megin getum við einnig
nýtt klasann til að auka afköst
einstakra verkefna með því að
keyra þau í samhliða vinnslu á
mörgum vélum. Fyrir tilstilli
Memory Channel, sem er 100
megabæta/s minnistenging á milli
klasameðlima, er skalanleiki mjög
góður í samhliða vinnslu. Með
Oracle Parallel Server fæst t.d.
u.þ.b. 80% afkastaukning út úr vél
númer 2 sem er aðeins innan við
10% lakara ef borið er saman við
það að bæta við gjörva í SMP-vél.
Digital hefur löngum haft for-
ystu á sviði klasakerfa, enda fann
fyrirtækið tæknina upp og kom
henni á markað fyrir um 14 árum.
Við hjá Digital á íslandi höfum
meira en 10 ára reynslu í að setja
upp og þjónusta klasakerfi með
góðum árangri. Góð dæmi um við-
skiptavini með klasakerfi eru Is-
lenska álfélagið, með framleiðslu-
stýringakerfið sitt, íslenska út-
varpsfélagið og íslensk getspá. Við
getum rétt ímyndað okkur hvað
hver klukkutími í niðritíma gæti
kostað þann síðastnefnda á laugar-
degi með 6 földum Lottó-potti!
Sveigjanlegt
Næsta atriðið á kröfulistanum,
„Sveigjanlegt og auðstækkanlegt“,
væri alveg við hæfi að hafa sem
titil kerfisteikningarinnar. í raun
eru engin takmörk sett fyrir stækk-
anleika, en möguleikamir eru hins-
vegar æði margir, eða allt frá ódýr-
um fínstækkunum eins og að skipta
út örgjörva eða bæta einum við,
upp í að bæta við nýjum miðlurum
eða StorageWorks diskakerfum.
Þá er það kostur að allar Alpha
Ö L V U M Á
vélamar geta keyrt bæði UNIX og
Windows NT (auk OpenVMS)
þannig að ef við þyrftum skyndi-
lega að auka afköstin t.d. í NT
klasanum gætum við einfaldlega
og án fyrirvara víxlað vélum á
milli klasanna. Til viðbótar gefur
svo 3ja laga b/m líkanið okkur
mikinn sveigjanleika eins og áður
hefur komið fram.
Hagkvæmt
Fjórðu kröfunni, þ.e. lágum
rekstrarkostnaði, er vel mætt hér.
Megin kostnaðurinn mun koma frá
gagnasafnskerfinu og þeim við-
fangshugbúnaði sem notaður
verður. Með öllum vélbúnaðinum
fylgir 3ja ára ábyrgð og, eins og
áður er getið, byggir hann á iðn-
aðarstöðlum þannig að viðbætur
eru ódýrar.
Ekki þarf hámenntaðan sér-
fræðing til að sjá um daglegan
rekstur. Bæði Digital UNIX og
Windows NT hafa auðlærð mynd-
ræn notendaskil sem ná til allra
helstu verka kerfisstjóra.
Samkvæmt ítarlegri úttekt
bandaríska ráðgjafafyrirtækisins
D.H. Brown (mars ’96), á gæðum
opinna stýrikerfa fyrir viðskiptaleg
umhverfi, er Digital UNIX í fyrsta
sæti. Fyrir utan að vera eina heild-
stæða 64-bita lausnin á UNIX
markaðnum sker það sig m.a. úr
fyrir öflug gagnageymsluundir-
kerfi, þar sem Polycenter Advaned
File System og Logical Storage
Manager eru í stafni, ásamt Legato
Networker (afritunarkerfi fyrir allt
netið). Með Digital UNIX má
vinna flest viðhaldsverk á meðan
kerfið er í fullri vinnslu, t.d. að
skipta út eða bæta við diskum,
stækka eða færa skráakerfi eða
jafnvel að breyta um RAID stig á
þeirn, taka heit afrit o.s.frv., verk-
efni sem í flestum stýrikerfum
krefjast niðritíma og næturvinnu.
L
Líftími
Síðasta atriðið á kröfulistanum
fjallar um fjárfestingarvernd.
Þegar nýtt kerfi er keypt er mikil-
vægt að það, sem fyrir valinu
verður, sé ekki byggt á tækni sem
er að komast á enda lífdaga sinna.
Reynslan sýnir að þegar stórar
breytingar verða sleppir öllum
alvöru stuðningi við hið gamla.
Framleiðendur einbeita kröftum
sínum að hinu nýja, því þar liggja
mestu tekjumöguleikarnir. Menn
eru því neyddir til að fylgja
straumnum, annars fá þeir ekki
notið nýrra kosta og sitja uppi fyrr
en varir með úreld kerfi, sem í
þokkabót verða alltaf dýrari í við-
haldi en hin nýju.
Með þeim búnaði sem lagt er
upp með í stofnkerfinu okkar er
engin áhætta tekin á fjárfestingar-
slysi.
Windows NT er á hraðri upp-
leið á markaðnum. Digital UNIX
byggir á nýkynslóðar stýrikerfis-
tækni og uppfyllir þegar í dag þá
megin kosti sem aðrir hafa skil-
greint sem „næstu kynslóðar
UNIX“ og áætla má að komi á
markaðinn um aldamótin.
Alpha gjörvahögunin er nú sú
eina sem Microsoft styður fyrir
Windows NT, að Intel x86 högun-
unum frátöldum, en að margra áliti
verður aðeins um þessar gjörva-
haganir að ræða í miðlurum næsta
áratugar. 64-bita útgáfa af Win-
dows NT er væntanleg í kringum
næstu áramót, en aðeins fyrir Al-
pha til að byrja með eða þar til
hinn 64-bita Intel P7/Merced
kemur á markaðinn undir lok
þessarar aldar.
Yfirburðir Alpha, þegar að af-
köstum er komið, verða ekki
véfengdir. Hraðvirkasti Alpha ör-
gjörvinn sem hægt er að kaupa í
dag keyrir á 600 MHz (21164A)
og er í heiltöluafköstum 60% hrað-
virkari en næsti keppinautur og
35% í fleytitölum.
Nýlega kom á markaðinn, í
samstarfi Digital og fjöldafram-
JÚNÍ1997 - 25