Tölvumál - 01.06.1997, Page 27
TOLVUMÁL
Kynning - Teymi hf.
Nettölvuhögun Oracle
- byggir á þekktum og reyndum stöðlum
Eflir EK/ar Sfein Þorkdsson
Nettölvuhögun (Network Com-
puting Architecture, eða hér eftir
NCA) er ný högun þar sem leitast
er við að leysa núverandi þróunar-
og rekstrarvandamál. Þessi högun
byggir á þekktum og reyndum
stöðlum og er ekki verið að finna
upp enn einn staðalinn, heldur
reynt að tryggja þá staðla í sessi
sem sannað hafa gildi sitt.
NCA er eina högunin sem nálg-
ast þróunar- og rekstrarvandamál
alla leið. NCA er óháð umhverfum
fyrir þróun og reksturs hlutbund-
inna, netlægra upplýsingakerfa
víðsvegar á netverkinu. Kjarni
hinnar nýju högunar eru opnir og
viðurkenndir staðlarar eins og
CORBA 2.0 og HTTP/HTML.
CORBA 2.0, sem þekktur er í dag
sem best þróaða og nothæfa tæknin
fyrir þróun á dreifðum hlutbundn-
um umhverfum, inniheldur IIOP
(Internet Inter-ORB (Object Re-
quest Broker) Protocol) fyrir
samskipti hluta og IDL (Internet
Definition Language) fyrir ‘inter-
face’ óháð forritunarmálum. Auk
þess JAVA sem gefur forritunar-
eiginleika, flytjanleika og útvíkk-
unarmöguleika út alla högunina.
NCA styður einnig ActiveX/COM
(og DCOM) biðlara frá Microsoft
í gegnum opna COM/CORBA
samskiptalýsingu byggða á vinnu
Object Management Group
(OMG).
I grundavallaratriðum byggir
NCA á hylkjum og hylkjabraut
sem boðskiptabraut milli óskyldra
hluta sem ýmist eru biðlarahylki,
hugbúnaðarhylki eða gagnahylki
(sjá mynd). Hylki eru þróuð með
núverandi tækni í C++, Java
o.s.frv. Ennfremur er stjórnunar-
umhverfi þar sem hugsað er fyrir
öllum þeim þáttum sem máli skipta
varðandi hylkin, samskiptin og
rekstur miðlaranna.
Dæmi um hylki á hugbúnaðar-
miðlara má nefna hylki sem fær
heimildir á úttektir kreditkorta,
debetkorta og annara korta. Þetta
hylki er á hugbúnaðarmiðlaranum
þar sem það leitar ekki að upplýs-
ingum í staðbundnum gagnagrunni
heldur kallar út á netið eftir heimild
og fær svar frá VISA, Eurocard
eða RB um hemild eða synjun. Til
að skrá svo viðskiptin tekur við
annað hylki sem kallar á gagna-
hylki sem að sér umskráningu við-
skiptanna o.s.frv. Hylki á biðlara
eru yfirleitt hugsuð sem grunn-
þjónusta biðlara, eins og Java túlk-
ur eða annað sem eðlilegt er að sé
biðlaramegin í þessari högun.
NCA er stefna fyrir hönnun,
rekstur og stjórnun dreifðra upp-
lýsingakerfa, þar sem dreifingin er
fólgin í þeim möguleika að keyra
hugbúnað og gagnagmnn(a) fyrir-
tækisins á ótakmörkuðum fjölda
miðlara. NCA sameinar eiginleika
biðlara-miðlara heimsins, einfald-
leika veftækninnar sem rekstrar-
umhverfis, og útvíkkunarmögu-
leika hlutbundna heimsins. NCA
nálgast þarfir rnjög breiðs hóps
viðskiptavina.
Frh. á nœstu síðu
Frh. afbls. 25
leiðslurisanna Mitsubishi og Sam-
sung, Alpha 21164PC. Markmiðið
er að láta þennan örgjörva keppa
á sama verðbili og Intel Pentium
er á og ná þannig til fjöldans á
Windows NT markaðnum.
21164PC er fyrsti Alpha örgjörv-
inn með innbyggðu skipanamengi
fyrir margmiðlun (MVI), en það
verður að finna í öllum nýjum Al-
pha örgjörvum hér eftir. í fyrstu
hrinu verður 21164PC til í 433-
600 MHz útgáfum.
í lokin má svo geta þess að um
mitt þetta ár kemur Alpha 21264
sem mun afkasta tvöfalt meira á
sömu klukkutíðni en 21164A.
Verður Alphan þá komin á kunnar
slóðir, þ.e.a.s. 3-4 sinnum afkasta-
meiri en keppinautarnir.
Niðurstaðan
Niðurstaðan af endurhögun-
inni, sem hér var lýst, ætti að gleðja
alla í fyrirtækinu. Fyrir lægri
kostnað gefur hún meiri afköst og
uppitíma og sveigjanlegan grunn
til að byggja á til langs tíma.
Helgi Örn Viggósson staifar
hjá Digital á IslancLi.
JÚNÍ1997 - 27