Tölvumál - 01.06.1997, Síða 29
TOLVUMAL
Windows NT miðlara og tengdur
inn í högunina sem annar miðlari
á netinu. Engin ný vísindi þar!
Biðlara-miðlara högun eins og
hún er í dag er góðra gjalda verð,
enda þekkt útfærsla sem hefur
reynst vel að flestu leiti. Feitir biðl-
arar þar sem allur hugbúnaðurinn
er keyrður á biðlara hefur reynst
erfiðlega, einkum með tilliti til
rekstrarkostnaðar, því þörf er á því
að skipta út tölvubúnaði á 2-3ja
ára fresti, m.v. að elta allar nýjar
útgáfur fyrir Windows stýrikerfis-
ins og á öðrum hugbúnaði. Auk
þessa hefur það reynst aðilum
erfitt og kostnaðarsamt að upp-
færa hugbúnað á biðlurum, því
vinnan er hlutfallslega sú sama
hvort um er að ræða 10 eða 100
manna fyrirtæki. Mörg fyrirtæki
og stofnanir hafa einfaldlega sagt
hingað og ekki lengra, og neita að
uppfæra biðlara sína með þeim
nýjasta Windows hugbúnaði. Þessi
þróun m.a. hefur fengið aðila eins
og Oracle, SUN, IBM o.fl. til að
hugsa tölvuvinnslu upp á nýtt.
Eignarhaldskostnaður Wintel
(Windows á Intel) umhverfa er
mjög hár, þrátt fyrir lágt innkaups-
verð. Á heimasíðu Intel (http://
www.intel.com/managedpc/
primer/glossary.htm#TCO) kemur
fram að heildar eignarhaldskostn-
aður Pentium einkatölvu á neti er
um $8.000, meðan að aðilar eins
og Gartner Group (http://www.
gartner.com) tala um $12.000 og
sést hafa tölur allt upp í $15.000.
Hvað sem því líður þá er ljóst að
eignarhaldskostnaður Wlntel er
mönnum ofviða og þörf er
hagkvæmari leiða. Reyndar koma
fram á heimasíðu Intel miklar
útlistanir á því hvernig hægt sé að
draga úr þessum mikla eignar-
haldskostnaði, með hugbúnaðar-
stýrðri netstjórnun. Slík lausn sem
kallar á enn eitt flækjustig, sem í
raun væri algjörlega óþarft nema
það að PC netumhverfi eru orðin
allt of flókin, og leysir netstjórnun
af þessum toga ekki þann vanda
sem raunverulega er til staðar. Það
er því þörf á einfaldari og betri
leiða til reksturs tölvuneta.
Nýverið var nettölvufjölskyld-
an kynnt af NC Inc. (dótturfyrir-
tæki Oracle Corp.), en þar kennir
margra grasa. NC Desktop™, NC
Card™, NC Services™ og NC
Server™ er fjölskylda hugbúnaðai'
og vélbúnaðar sem er ætlað leysa
vandamálin sem að steðja í dag á
hagkvæman og einfaldan hátt. Ný-
verið kynnti Oracle og NCI þessa
lausn og verður hún boðin í mis-
munandi útfærslum. Fyrir 5 not-
enda umhverfi þá kostar slíkur
pakki um $5.000, og hver viðbót-
arnotandi kostar svo $149. NCA
og nlc verður kynnt á íslenska
markaðnum á næstu vikum. Þegar
líður á sumarið fara fyrstu upp-
setningar í gang og nettölvan, eða
öllu heldur nettölvuhögunin verður
þá alls ráðandi frá og með næsta
hausti.
Frekari upplýsingar um net-
tölvuhögunina er að finna á
heimasíðu Oracle (http://www.
oracle.com/nca) og um nettölvuna
á heimasíðu NC Inc. (http://
www.nc.com).
Elvar Steinn Þorkelsson er
tölvunarfrœðingur frá Cali-
fornia State University, og
starfar nú sem framkvœmda-
stjóri hjá Teymi hf
JÚNÍ1997 - 29