Tölvumál - 01.06.1997, Blaðsíða 30
Breytt hlutverk PC netþjóna
í nútíma netkerfum
Effir Jón Harka Gunnarsson
Fá svið upplýsingatækninnar
hafa tekið jafnmiklum stakkaskipt-
um og miðlun upplýsinga á netum.
Þegar talið barst að netþjónum eða
miðlurum hér áður fyrr var oftast
átt við stór og mikil ferlíki sem sáu
um vel skilgreinda og afmarkaða
þjónustu eins og t.d. bókhald eða
launaútreikninga. Rekstrarkostn-
aður var hár og sérþekking þeirra
sem sáu um rekstur vélanna þurfti
að vera mikil. Einungis stór og öfl-
ug fyrirtæki lögðu í slíkar fjárfest-
ingar. Þannig skapaðist meðal ann-
ars rekstrargrundvöllur fyrir aðila
sem leigðu út eins konar vélrænt
þjónn
vinnuafl. Þeir sáu um tölvukeyrsl-
ur fyrir hópa viðskiptavina og skil-
uðu niðurstöðum í formi útprent-
aðra lista.
Einkatölvubyltingin hófst árið
1981 og skilaði okkur ódýrum og
meðfærilegum búnaði á færi
flestra kaupenda. Tölvurisar á
borð við COMPAQ, IBM, Hew-
lett-Packard, og fleiri kepptust við
að náhylli markaðarins. Árið 1989
setti COMPAQ svo á markað
fyrsta PC netþjóninn. Hann fékk
nafnið COMPAQ SystemPro og
naut strax mikilla vinsælda. Allar
götur síðan hefur COMPAQ unnið
sleitulaust að því að gera PC net-
þjóninn áreiðanlegri og vænlegri
kost þegar kemur að því að velja
netþjón fyrir mismunandi verkefni.
Ekki eru mörg ár liðin síðan
lykilhugtökin rekstraröryggi og
áreiðanleiki áttu litla samleið með
PC netþjóninum. Á síðustu árum
hafa þó átt sér stað miklar breyt-
ingar á þessu sviði með tilkomu
öflugri og öruggari vélbúnaðar og
vandaðri hugbúnaðar. Þetta hefur
gert það að verkum að PC net-
þjónninn er nú að hasla sér völl á
flestum sviðum netmiðlunar hvort
sem um er að ræða litla skráar-
miðlara eða stórar og ómissandi
gagnagrunnsvélar. Lítum nánar á
nokkur atriði sem hafa stuðlað að
þessari þróun.
Þróun og samkeppni
PC heimurinn þróast mjög hratt
og nýjungar skila sér fljótt og vel
inn á markaðinn. Samkeppnin sér
um að halda verði niðri og þar sem
viðskiptavinurinn er í raun að
kaupa PC vél hefur hann algert
frelsi um hvaða hugbúnað hann
notar á netþjóninum. Hann getur
m.ö.o. valið þann hugbúnað sem
hann telur henta sínu fyrirtæki best
og er ekki bundinn af takmörkun-
um vélbúnaðarins og sérsniðnum
hugbúnaðarlausnum. Auk þess er
þekking viðskiptavinarins á PC
tölvum og almennum PC hugbún-
aði mun meiri heldur en á UNIX/
RISC eða AS-400 umhverfi.
Vélbúnaðurinn og
rekstraröryggi
Rekstraröryggi er úrslitaatriði
við uppbyggingu netkerfa. Net-
þjónninn verður að skila hámarks-
nýtingu og uppitíma því hver
mínúta án tengingar við netþjóninn
getur skaðað fyrirtækin verulega.
PC netþjónar eins og COMPAQ
Proliant 5000 eða Proliant 2500
eru góð dæmi um nútíma PC net-
þjóna sem byggja á Intel Pentium
Pro örgjörvum og uppfylla ströng-
ustu kröfur um áreiðanleika og
öryggi. Ekkert er til sparað til að
varan skili hámarksnýtingu fyrir
notandann. Þar má nefna vel
þekktar lausnir eins og minni með
villuleiðréttingu (ECC). Virkni
harðra diska er skráð og þannig
má spá fyrir um hugsanlegar bil-
anir. Búnaður eins og örgjörvar,
viftur, straumgjafar, netkort og
diskstýrispjöld eiga sér bakhjarla
(Redundant CPU, NIC o.s.frv.).
Þannig tekur einn hlutur við af öðr-
um ef bilun á sér stað. Einnig má
nefna möguleika eins og útskiptan-
lega (Hot-Plug) diska sem taka má
úr og setja í meðan netþjónninn er
30 - JÚNÍ1997