Tölvumál - 01.06.1997, Side 31
TOLVUMAL
í gangi. Diskastæður eru síðan
byggðar upp með fullkomnum
RAID SCSI stýrispjöldum sem
auka enn á rekstraröryggið. Einnig
má auka rekstraröryggi á annan
máta heldur en með viðbótar vél-
búnaði. Ymsar hugbúnaðarlausnir
hafa verið þróaðar í gegnum
tíðina.
Hugbúnaðarog
rekstraröryggi
Novell hefur um árabil selt
lausn fyrir PC netþjóna undir nafn-
inu NetWare SFT-III. í raun er þar
um að ræða speglun á milli tveggja
netþjóna. Ef annar netþjónninn
missir samband eða bilar tekur
hinn við án þess að notandinn verði
þess var. COMPAQ hefur kynnt
lausnir fyrir Microsoft NT eins og
Online Standby Recovery Server
sem byggir á svipaðri hugmynd og
SFT-III, þ.e. tveir svipaðir COM-
PAQ netþjónar styðja hvor annan
og við bilun flyst þjónustan sjálf-
krafa yfir á annan hvorn þjóninn.
Einnig hafa komið fram margar
spennandi nýjungar á þessu sviði.
Microsoft og COMPAQ kynntu
nýverið í sameiningu eina þeirra,
framtíðarlausn fyrir Microsoft
Windows NT sem byggir á klösun.
Þar er um að ræða nýjung sem ber
heitið Microsoft Wolfpack. Aætlað
er að Wolfpack komi á markað á
næsta ári og mun það verða hluti
af stýrikerfinu Windows NT 5.0
sem væntanlegt er frá Microsoft.
Helstu kostir klösunar eru:
1. Aukið rekstraröryggi með sam-
tengingu tveggja eða fleiri véla.
Báðar/allar hafa sín eigin verk-
svið en taka yfir verksvið ann-
arra véla ef um bilun er að
ræða.
2. Álagsdreifing. Afkastageta
netþjóna er látin flæða á milli
verksviða.
3. Mikill sveigjanleiki. M.a. má
bæta við PC netþjóni ef þörf er
á auknu heildarafli.
Að síðustu má nefna að COM-
PAQ hefur, í samvinnu við leiðandi
aðila á markaðnum, unnið að
nýjum staðli, svokölluðum Hot
Plug PCI, sem gerir okkur kleift
að taka úr og skipta um stækkunar-
kort í PCI raufum meðan vélin er í
gangi. Þetta mun enn frekar
tryggja stöðu PC netþjónsins sem
áreiðanlegs og ómissandi hlekks í
nútíma tölvuumhverfi.
En hvað með aflið?
I gegnum tíðina hafa hinir
hefðbundnu UNIX miðlarar sem
byggja á RISC högun haft all-
nokkurt forskot á PC netþjóna
þegar kemur að afli og reiknigetu.
En með markaðssetningu Intel
Pentium Pro örgjörvans má segja
að dregið hafi saman með þessum
tveimur leiðum. Mælingar óháðra
aðila eins og TPC (Transaction
Processing Counsil) hafa sýnt með
óyggjandi hætti að PC netþjónninn
hefur skotið mörgum af eldri RISC
miðlurunum ref fyrir rass svo um
munar. Bæði hvað varðar hraða
(færslur á mínútu eða tpm-C) sem
og verð á hraðaeiningu ($/tpmC).
Framtíðin
Fá svið framleiðslu og þróunar
breytast jafn ört og einmitt það
svið sem hér hefur verið fjallað
um. Margar spennandi nýjungar
eru á næsta leiti og samkeppnin er
geysihörð. Mikla athygli vakti
þegar COMPAQ og Microsoft
sýndu í sameiningu klösun á PC
netþjónum með Wolfpack viðbót-
inni í desember s.l. Þar sjá menn
fyrir sér að ofurtölvukeifi framtíð-
arinnar standi saman af mörgum
„miðlungs“ öflugum PC netþjón-
um sem með klösun vinni saman
að ákveðnum verkefnum.
Einnig eru að koma fram
nýjungar hvað varðar notkun á
ljósleiðaratækni innan veggja net-
þjónsins eins og t.d. í diskstýr-
ingum og samskiptabúnaði. Þetta
er nauðsynlegt skref ef nýta skal
klösun netþjóna til fullnustu.
Mynd 2. Compaq Proliant
2500 netþjónar í skáp
Það er ljóst að athygli mark-
aðarins mun næstu árin beinast að
öflugum og áreiðanlegum PC net-
þjónum í æ ríkari mæli. Forsendur
fyrir farsælli framtið þeirra eru
fyrir hendi og nú er aðeins að bíða
og sjá hvert þróunin leiðir okkur.
Jón Bjarki Gunnarsson
starfar hjá Tæknivali hf. sem
vörustjórnandi fyrir COM-
PAQ vörur.
JÚNÍ1997 - 31