Tölvumál - 01.06.1997, Blaðsíða 32
TÖLVUMÁL
IBM System/390 - Stórtölvur
Eftir Hiálmtv Guðmundsson
S/390
Fyrir nokkrum árum var mikið
talað um að dagar stórtölvunnar
væru liðnir. Sú spá hefur ekki ræst
og raunar hefur aldrei selst jafn
mikið af slíkum tölvum og síðasta
ár og allt útlit er fyrir að enn fleiri
seljist á þessu ári.
Söluaukning á IBM System/
390® milli áranna 1995 og 1996
mæld í afköstum er 65%, úr
324.300 MIPS 1995 í 535.000
MIPS 1996. Áætlað er að þetta ár
verði salan 900.700 MIPS eða
68% stökk upp á við. Allt bendir
til að þessi þróun haldi áfram út
þessa öld (DM).
Eitt af því sem átti hvað mestan
þátt í þessu var ný gerð örgjörva,
CMOS örgjörvar í stað Bi-polar
örgjörva. Þessir nýju örgjörvar eru
miklu ódýrari í framleiðslu og allur
þróunarkostnaður hefur minnkað
mjög mikið. SamfaraCMOS bylt-
ingunni hefur verð á Sys-
tem/390 tölvunum lækkað
verulega og einnig hafa
komið á markaðinn minni
vélar en áður.
Það er kannski svolítið
villandi að kalla þetta stór-
tölvur sem var þýðing á
„Mainframe“ og nær að
kalla þær System/390 eða
S/390® tölvur en það er sú
högun (architecture) sem
liggur að baki þessum tölv-
um. Þessar vélar eru ekki
eins stórar að umfangi og
áður var þó afköst þeirra
hafi aukist.
Helstu kostir CMOS
vélanna er lægra verð,
minni fyrirferð, léttari vélar,
lægri bilanatíðni og þar með
minni viðhaldskostnaður og
síðast en ekki síst þá er rafmagns-
notkun brot af því sem áður þekkt-
ist í þessu umhverfi og við það
hefur kæliþörf minnkað. Allt þetta
þýðir mun lægri rekstrarkostnað.
Ef bornar eru saman IBM
9021-900 og 9672-R84 kemur í
Ijós að orkunotkun minnkar um
97%. Þörf fyrir gólfpláss minnkar
um 94% í sama dæmi og viðhalds-
kostnaður lækkar um allt að 70%
en afkastaaukningin er 10 - 15%.
Þetta þýðir aukna hagkvæmni S/
390. Eins og áður segir hefur verð
á vélbúnaði lækkað verulega og nú
er talið að það lækki um 35% á
ári (IDC).
Auknir tengimöguleikar og
fullur stuðningur við TCP/IP í
CMOS vélunum hefur einnig
stuðlað að auknum vinsældum
þeirra. Með The Open System
Adapter (OSA) hefur IBM fylgl
þeirri þróun sem hefur orðið á
sviði nettenginga. OSA er inn-
byggður búnaður er gefur tengi-
möguleika við ATM, Ethernet,
Token Ring og Fiber Distributed
Data Interface (FDDI) staðarnet
(LAN).
Enn einn góður kostur sem
hefur alltaf fylgt S/390 er rekstrar-
öryggi og það sem stundum er
kallað þjónustutími (up-time).
Flestar aðrar gerðir státa af allt að
97% þjónustutíma en í S/390
umhverfi er miðað við meira en
99,9% þjónustutíma 7 daga í viku
og 24 tíma í sólarhring og með
samtengingu slíkra tölva f „Paral-
lel Sysplex“ er stefnt að 100%
þjónustutíma kerfa.
Ekki má gleyma því að mestur
hluti þeirra gagna sem til eru f
tölvutæku formi hjá fyrirtækjum er
í S/390 umhverfi. Með tilkomu
Internetsins og Lotus Notes hefur
þessi þáttur orðið mjög mikilvæg-
ur. Þess vegna líta fyritæki meir
og meir til þessa umhverfis fyrir
sína miðlara og það er staðreynd
að miðlægar vinnslur eiga meira
fylgi að fagna en var fyrir nokkrum
árum. Nettölvan (Network Com-
puter / Network Station) mun
stuðla enn frekar að þessari þróun.
Fyrirtækið Caterpillar veitir
t.d. aðgang með vefrápara (Web-
browser) að S/390 gagnagrunni
með meira en 4,5 milljónum verk-
fræðiteikninga. Markmið þeirra er
að auka framleiðni og bæta þjón-
ustu við birgja og umboðsmenn.
Þeir líta svo á að kostir stórtölv-
unnar séu ótvíræðir hvað varðar
gagnaöryggi og aðgangsstjórnun
og geta þannig notað núverandi
gögn beint ásamt öryggiskerfi sínu
32 - JÚNÍ1997