Tölvumál - 01.06.1997, Page 33
TOLVUMAL
Hraðbraut 64 frá IBM
Eftir Heimi Ertinasson
Tölvuiðnaðurinn er nú á kross-
götum. Nýlegar tækniframfarir
hafa valdið því að framleiðendur
hálfleiðara geta nú búið til 64 bita
örgjörva í einum kubbi. Flestir
tölvuframleiðendur hyggjast setja
þessa örgjörva í tölvur sínar. IBM
eru á meðal þeirra fáu sem hafa
stigið skrefið algjörlega sbr. IBM
AS/400.
64 bita hraðbrautin, sem búin
hefur verið til, er mikilvæg sökum
þess að kröfur um vinnslugetu eru
að aukast. Erfitt er að mæta þess-
um kröfum með 16 og 32 bita ör-
gjörvum sem við þekkjum í dag.
Nú þegar eru stór gagnakerfi tekin
að reyna mjög á þau 4 gígabæti af
minni sem 32 bita örgjörvi gefur
kost á. 64 bita örgjörvi ryður þess-
um takmörkunum úr vegi og eykur
afkastagetu forrita.
Hraöahindranir
Sum tölvufyrirtæki eru hins
vegar í erfiðleikum með að fá forrit
sín til að virka á 64 bita örgjörvum
vegna þess að tölvur þeirra eru
„tækniháðar“, sem þýðir að breyt-
ingar á vélbúnaði eins og örgjörva
kalla á breytingar á sjálfum forrit-
unurn. Forrit sem voru upphaflega
skrifuð fyrir 16 og 32 bita örgjörva
geta ekki nýtt sér alla þá möguleika
sem 64 bita örgjörvi veitir, nema
með einhvers konar aðstoð. T.d.
getur þurft hermiforrit eða víxlun
á vinnsluham, eða umskrift á for-
ritinu. Einnig verður óhjákvæmi-
legt að umskrifa einhver af þeim
stýrikerfum sem fyrir eru. Mörg ár
eiga eftir að líða áður en hægt
verður að aðlaga megnið af þeim
hugbúnaði sem nú er á markaðnum
64 bita tækninni. Þetta á þó ekki
við um hugbúnað fyrir AS/400
tölvuna, sem er óháð tæknibúnaði
á þann hátt að forittun og vélbún-
aði er haldið aðskildum. Þessi
högun veldur því að öll AS/400
forrit geta nú þegar ráðið við 64
bita. Þegar IBM setti 64 bita ör-
gjörva í AS/400 tölvuna varð leik-
ur einn að keyra þann hugbúnað
sem til var fyrir, án þess að þörf
væri áhermifomtun, vinnsluhams-
víxlun eða umskriftum.
IBM PowerPC
örgjörvinn
Örgjörvinn í AS/400 er 64 bita
RISC kubbur sem hlotið hefur
heitið PowerPC. Ráðgert er að
með tímanum verði PowerPC-
örgjörvinn, sem IBM hannaði í
Frh. á næstu síðu
Frh. affyrri síðu
sem tengt er IBM Web Server hug-
búnaðinum.
Og hvað með Lotus Notes?
Chrysler áætlar að verða með
25.000 Notes notendur á stórtölv-
um og sá fjöldi gæti tvöfaldast
þegar birgjar þeirra bætast við
(DM).
Það sem á eftir að ýta stóru
fyrirtækjunum út í Internet þjón-
ustu á stórtölvum (S/390) eru
rafræn viðskipti (electronic com-
merce). S/390 er eðlilegt umhverfi
fyrir slík viðskipti því þar eru
gögnin í flestum tilfellum. Auk
þess er stórtölvuumhverfið tölu-
vert á undan öðrurn hvað varðar
öryggi, áreiðanleika og gagna-
geymslur. Þar að auki er mögu-
leikinn á stælckun (scalability)
margfalt betri en í öðrum tölvuum-
hverfum og slíkt er nauðsynlegt
fyrir rafræn viðskipti þar sem hægt
verður að veita milljónum við-
skiptavina aðgang að gögnum og
upplýsingum.
IBM System/390 er í mikilli
sókn. Það er ekki aðeins vélbúnað-
urinn sem er í hæsta gæðaflokki,
heldur er það einnig hugbúnaður-
inn sem verður að uppfylla strang-
ar kröfur þeirra fyrirtækja sem
eiga allan sinn rekstur undir því
að tölvukerfin gangi. Eg t.d. hef
séð einfaldan útreikning sem sýnir
að stöðvun tölvukerfanna hjá
Chrysler kostar milljón dollara á
klukkustund, beint tekjutap. Slík
fyrirtæki geta aðeins valið það
besta og öruggasta sem er System/
390.
Tilvísanir:
- (DM) Datamation í april 1997
Are mainframes cool again?
DavidSimpson.
- (IDC) Intemational Data Corp.
Framingham, Mass. (Markaðs-
rannsóknir).
- Intemet:
http://www.s390.ibm.com
Hjálmtýr Guðmundsson,
kerfisfrœðingur, starfar hjá
Nýherja hf.
JÚNÍ1997 - 33