Tölvumál - 01.02.2000, Síða 3

Tölvumál - 01.02.2000, Síða 3
TOLVUMAL Tímarit Skýrslutæknifélags íslands • E • F • N • I • Fró formanni ÓSKAR B. HAUKSSON Staðall fyrir alla - um öryggi Hjörtur Hjartarson 5 upplýsinga ^ KLINK - myntkort banka og spari Kjartan Jóhannesson WAP æðið og Waporizer Guðmundur Hafsteinsson Verkefnastjórnun 101 Þórður VIkingur Friðgeirsson Windows 2000 Magnús Björn Sveinsson Skýrsla stjórnar fyrir órið 1999 ÓSKAR B. HAUKSSON Róðstefnur og sýningar Samantekt á birtum greinum í 24. órgangi Tölvumóla 13 16 19 24 27 29 Með þessu tölublaði hefst tuttugasti og fimmti árgangur Tölvumála. I Ijósi þróunarinnar er þetta afar langur timi. Slikur er hraði breytinganna. Þó er ekki ætlunin hér og nú að líta um öxl heldur horfa fram á við og sem fyrr mun blaðið hafa að leiðarljósi að birta áhugaverðar greinar eftir innlenda höfunda um málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Hinn margumtalaði 2000 vandi er svo gotf sem að baki en sjálft árið 2000 hófst með miklu auglýsinga- flóði þar sem WAP tæknin boðaði komu sína. WAP er til um- fjöllunar í blaðinu en nefna má að stungið hefur verið upp á heitinu vefsimi um farsima sem búnir eru WAP. Gaman væri að heyra frá lesendum hvernig þeim lísf á eða hvort þeir hafi aðrar fillögur. Það eru miklar andstæður milli þess tíma þegar Tölvumál hóf göngu sína og nú. Þá voru stórar megintölvur það sem mest bar á, siðan komu einmenningstölvurnar á hvert borð og smáar lófatölvur og vefsímar eru að slást í hópinn. Flóran verður æ fjölbreyttari og tölvutæknin teygir sig inn á fleiri og fleiri svið. I blaðinu er að finna í þriðja sinn ráðstefnudálk sem tekin er saman af ritstjórninni. Þar verður bent á væntanlegar ráðstefnur innanlands sem utan en allar ábendingar og viðbætur þar eru vel þegnar. Einar H. Reynis Eftirtalin fyrirtæki styrktu útgáfu Tölvumála: Reiknistofa bankanna Hitaveita Suðurnesja ISSN-NÚMER: 1021-724X Vefsími Seint í janúar hafði Auður Pálsdóttir, starfsmaður auglýs- ingastofunnar Hvíta húsið, samband við formann orða- nefndar og bað um tillögu að heiti á því sem hefur verið kallað WAP-sími. Fjallað var um málið á fundi nefndarinn- ar 27. janúar og kom þá fram sú tillaga að kalla WAP-síma vefsíma. WAP mun vera skammstöfun á „Wireless Appli- cation Protocol". En vefsímar eru m.a. notaðir til þessa að fá samband við veraldarvefinn. WAP-þjónustu mætti kalla vefsímaþjónustu. Auður Pálsdóttir mælti með orðinu vef- sími við íslandsbanka og þeir nota orðið í augíýsingu sinni sem er utan á sumum strætisvögnum í Reykjavík. Tölvumál 3

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.