Tölvumál - 01.02.2000, Qupperneq 5

Tölvumál - 01.02.2000, Qupperneq 5
Frá formanni Frá formanni Óskar B. Hauksson Flestir líta enn á tölvu- málin sem afmarkaða bakvinnslu sem hafi lítið með stefnumörk- un að gera Hér á landi er ekki mikil verðlista- og uppboðsmenning þannig að væntan- lega verður eitthvað í að við tileinkum okkur almennt vefviðskipti Um þessar mundir stendur yfir mik- ið stríð á milli bankanna um svo- kallaða WAP þjónustu þar sem allir keppast um að vera fyrstir með nýjungarnar þrátt fyrir að rnjög takmark- aður hluti viðskiptavina sömu banka eigi möguleika á að nýta sér þessa þjónustu vegna skorts á símum sem styðja WAP staðalinn. Þetta leiðir hugann að þeim breytingum sem upplýsingatæknin er að hafa á samkeppnisstöðu og ímynd fyrir- tækja. Með tilkomu Internetsins hafa öll viðrnið raskast þar sem stór og stöndug fyrirtæki hafa fengið samkeppni úr óvænt- um áttum og eru nú í óða önn að reyna að átta sig á þessu nýja umhverfi. Bankar eru smám saman að skilja hlut- verk sitt sem upplýsingafyrirtæki og fjár- festa í óða önn í nýrri tækni sem þeir nýta í samkeppninni. Yfirmenn tölvudeilda eru allt í einu komnir í fremstu víglínu þar sem áður sáust aðeins vel smurðir mark- aðsmenn. Þó svo að bankarnir hafi verið mest áberandi að undanförnu eru fáar at- vinnugreinar sem ekki verða fyrir breyt- ingum vegna upplýsingatækninnar. Enn sem komið er hafa hins vegar fá fyrirtæki reynt að átta sig á þessari breyttu stöðu og markað sér stefnu í upplýsingamálum. Flestir líta enn á tölvumálin sem afmark- aða bakvinnslu sem hafi lítið með stefnu- mörkun að gera. Gjaman eru upplýsinga- rnálin spyrt saman við fjármál fyrirtækj- anna þar sem jú bókhaldið var það fyrsta sem var tölvuvætt á sínunr tíma. Fjar- skiptamálin eru síðan oft tengd húsnæðis- málum og skrifstofuhaldi. Tiltölulega lítið hefur verið gert af því að tölvuvæða þá þætti sem snúa að viðskiptum fyrirtækja og þjónustu gagnvart viðskiptavinum. Mörg fyrirtæki hafa eytt stórum fjárhæð- um í að tölvuvæða bókhald, framleiðslu, birgðahald og starfsmannamál með heild- arkerfum eða Enterprise Resource Mana- gement (ERP) kerfurn eins og þau nefnast á ensku. Nú hafa þessi kerfi fallið í skugg- ann af svokölluðum Customer Relation- ship Management (CRM) kerfum sem eru í mikilli sókn erlendis. Þessi kerfi halda utanurn öll tengsl fyrirtækja við markað- inn og viðskiptavini. Sölu- og markaðsá- ætlanir eru samviskusamlega settar inn í kerfin og þar eru öll þjónusta og samskipti við viðskiptavini skráð. Hægt er síðan að gera ýrnsar greiningar með það að mark- ntiði að finna á hvaða viðskiptavinum fyr- irtækið lifir og hvaða viðskipti skila tapi. Menningarþættir Velta má fyrir sér hvers vegna upplýsinga- málin séu endilega eitthvað sérstakt við- fangsefni, er ekki nær að líta á hana sem verkfæri og samofna allri starfsemi fyrir- tækjanna? Þegar nýjungar koma fram er gjarnan litið á þær sem einstakt fyrirbæri sem ekki tengist neinu sem áður hefur þekkst. Gott dæmi um þetta er hið marg- nefnda fyrirtæki amazon.com sem ýmsir spekingar kepptust við að reyna að skil- greina í nokkur ár þangað til þeir áttuðu sig á að fyrirtækið er í raun og veru smá- sala. Þrátt fyrir allar nýjungarnar, breytist maðurinn og hans þarfir ekki svo mikið í tímans rás. Nú velta margir fyrir sér af hverju Islendingar eru svo seinir til að nýta sér vefviðskipti miðað við þær þjóðir sem hafa svipaða stöðu varðandi út- breiðslu Internetsins. Væntanlega er svarið að finna í þeirri menningu sem ríkir í hverju landi. í Bandaríkjunum er gömul póstlistahefð sem hefst á 19. öldinni og færist síðan yfir á sjónvarpsmarkaðina. Þar hefur einnig verið rík uppboðshefð sem er óðurn að ryðja sér til rúms á netinu. Vefviðskipti eru síðan rökrétt framhald þessarar menningar og í raun ekki svo mikil bylting ef grannt er skoðað. Hér á landi er ekki mikil verðlista- og uppboðs- menning þannig að væntanlega verður eitthvað í að við tileinkum okkur almennt vefviðskipti. Svo virðist sem að fjárfestar séu á sörnu skoðun ef litið er til þeirra gífurlegu fjárfestinga sent fram undan eru í verslunarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Það verður því ifóðlegt að fylgjast með samkeppni vefkringlanna sem eru nú í smíðurn við hefðbundnar verslanir. Tölvumál 5

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.