Tölvumál - 01.02.2000, Blaðsíða 8

Tölvumál - 01.02.2000, Blaðsíða 8
Staðall Staðall fyrir alla - um öryggi upplýsinga Hjörtur Hjartarson Staðallinn er verkfæri til að tryggja og meta öryggi upplýs- inga af öllu tagi Miðlægur gagnagrunnur á heil- brigðissviði" er fyrirbæri sem er þjóðinni tamt í munni þótt að- eins sé skammur tírni frá því það hafði framandlegan hljóm. Ástæðan er að sjálf- sögðu hin gríðarlega umræða sem orðið hefur um gagnagrunninn. Hér er ekki ætl- unin að bæta þar neinu við, en í nýlegri frétt frá Tölvunefnd er vísað til staðla sem ásamt öðru verður stuðst við til að tryggja öryggi upplýsinga í grunninum. Þar á meðal er ISO/IEC 15408 Information technology - Security techniques - Evalu- ation criteria for IT security. Þar sem staðallinn er nefndur í sömu andrá og mið- lægur gagnagrunnur á heilbrigðissviði hlýtur að vera gráupplagt að segja frá hon- um í örstuttu máli. Staðallinn er einnig fréttnæmur vegna þess að stjórnvalds- stofnanir-í Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og Bret- landi - sem sinna eftirliti með meðferð og öryggi upplýsinga, tóku sig saman um að gera hann að veruleika. Stofnanir þessar hafa einnig skuldbundið sig til að fylgja staðlinum. En til hvers er staðallinn ætlaður og fyrir hverja? Skýrar kröfur Fyrri spurningunni er fljótsvarað; staðall- inn er verkfæri til að tryggja og meta ör- yggi upplýsinga af öllu tagi, hvort sem einstök tól eða upplýsingakerfi innihalda upplýsingarnar. I staðlinum eru settar fram almennar kröfur og aðferðir til að ganga úr skugga um að þær séu uppfylltar. Hinar almennu kröfur staðalsins gera kleift að bera saman niðurstöður úr aðskildum ör- yggisúttektum. Jafnframt gera kröfurnar niðurstöður öryggismatsins auðskildari og aðgengilegri, þar sem augljóst verður hvaða kröfur eru gerðar, hvað þarf til þannig að þær teljist uppfylltar og hvernig á að sannreyna það. - Það skal undirstrik- að hér að staðallinn tekur til öryggisþátta sem snerta upplýsingatækni með beinum Úttekt á öryggi upplýsinga 8 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.