Tölvumál - 01.02.2000, Qupperneq 19

Tölvumál - 01.02.2000, Qupperneq 19
Windows 2000 Windows 2000 Magnús Björn Sveinsson Þegar þetta er ski'ifað eru aðeins nokkrir dagar í það að Windows 2000 komi á markaðinn. Microsoft hefur verið að keyra Windows 2000 á öllum vélurn sínum frá því í júní með góðum árangri og fleiri fyrirtæki um víða veröld hafa verið að keyra það síðustu mánuði. Það kom mér satt að segja á óvart hversu miklar breytingar hafa verið gerðar frá NT 4.0. Auðvitað eiga að vera breyt- ingar á milli útgáfa, ekki aðeins útlits- breytingar. Windows 2000 er að sjálfsögðu komið með nýtt útlit sem það fær að hluta til frá Windows 98. En það eru breytingarnar á sjálfum kjarnanum, og þær nýjungar sem þar eru, sem mér þóttu merkilegastar. Hér á eftir ætla ég að reyna að stikla á stóru og fjalla aðeins um þær nýjungar og breytingar sem íolgnar eru í þessu nýja stýrikerfi. Sem vinnustöð er auðveldara að nota og stjórna Windows 2000 en eldra stýrikerfinu. En það er ekki þar með sagt að Windows 2000 sé fyrir heimili. Þvert á móti er Windows 2000 gert fyrir fyrirtæki þar sem stuðningur við leiki, og þess háttar tómstundir, er ekki nauðsyn. Að vísu er hægt að spila suma leiki í Windows 2000. Windows 2000 kemur í fjórum útfærsl- um: • Windows 2000 Professional Windows 2000 Professional er stýrikerfi fyrir vinnuvélar og ferðavélar og hentar öllum stærðum fyrirlækja. http://www.microsoft.com/windows 2000/guide/professional/features/ default.asp • Windows 2000 Server Windows 2000 Server er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem þurfa netstýri- kerfi til að keyra file, print, internet, samskipti við önnur net og búnað. http://www.microsoft.com/windows 2000/guide/server/features/default.asp • Windows 2000 Advancecl Server Windows 2000 Advanced Server hefur að geyma alla þá eiginleika sem Windows 2000 Server hefur og að auki býður hann upp á fleiri möguleika til að Sem vinnuslöð er aðveldara að nota og stjórna Windows 2000 en eldra stýrikerfinu Active Directory auðveldar stýringu á staðarneti sem byggir á Windows 2000 samanborið við fyrirrennara þess Windows NT 4.0. auka notkunareiginleika hugbúnaðar. Svo sem Load Balancing og Cluster Servises http://www.microsoft.com/windows200 O/guide/server/features/default.asp • Windows 2000 Datacenter Server Windows 2000 Datacenter Server er nýjasti meðlimur Windows 2000 Server fjölskyldunnar og er ætlaður fyrir stórfyrirtæki sem gera kröfur um mjög mikla stækkunarmöguleika. Nýjungar Nýja stýrikerfi Microsoft, Windows 2000, hefur að geyma margvíslegar nýjungar og hér á eftir verður fjallað í stuttu máli um þær helstu. Active Directory Ein mikilvægasta nýjungin í Windows 2000 er „Active Directory“ sem auðveldar stýringu á staðarneti sem byggir á Windows 2000 samanborið við fyrirrenn- ara þess Windows NT 4.0. Active Directory er gagnagrunnur sem er dreifður yfir netið og inniheldur allar lýsingar um netið svo sem notendur, stillingar á forritum og margt annað sem netstjórnendur og fomtarar vilja setja þar inn. Active Directory tekur við af Windows NT Domain. Active Directory býður upp á meiri sveiganleika og auðveldari umsjón auk þess sem það gefur kost á því að dreifa fomtsstillingum yfir staðarnetið. Orðið „Directory" (skráaryfirlit) er eitt af þessum ofnotuðu orðum sem merkir marga mismunandi hluti fyrir fjölda fólks. Á vinnustöðinni er „skráaryfirlit“ staður til að geyma og skipuleggja skiár. Á Internetinu eru Fourl 1 og WhoWhere „Skráaryfirlit" til að l'inna fólk. Fyrir netstjórnandann er mikilvægasta skráaryfirlitið það sem hefur að geyma allar upplýsingarnar um notendur, notendahópa, prentara og aðra upplýsingar um staðarnetið. Skráaryfniitið er sá staður sem að netstjórnandinn eyðir mestum tírna sínum, t.d við að setja inn nýja notendur, notendahópa og gefa/taka aðgang að skrám. Active Directory heldur Tölvumál 19

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.