Tölvumál - 01.07.2002, Síða 10
Markaðstorg
Staðan er í raun sú
að vilji birgi eða
framleiðandi á
íhlutum eiga mögu-
leika á viðskiptum við
einhvern af bílarisun-
um, jbó verður sá
hinn sami að
tengjast Covisint
markaðstorginu
og auka hagkvæmni í viðskiptum fyrir
bæði kaupendur og seljendur. Samkvæmt
upplýsingum frá ráðgjafar- og rannsóknar-
fyrirtækinu AberdeenGroup geta bæði
kaupendur og seljendur sparað og hagrætt
verulega með því að nýta sér kosti raf-
rænna markaðstorga og rafrænna inn-
kaupa, eins og eftirfarandi upptalning
bendir til:
• Lækkun vöruverðs að meðaltali milli
5% tillO%
• Tímaspamaður frá pöntun til afhend-
ingar um 70% til 80%
• Lækkun stjórnunarkostnaðar um allt að
73%
• Innkaup framhjá samningum (e. Maver-
ick buying) minnka um allt að 50%
• Lækkun birgðakostnaðar um 25% til
50%, að meðaltali1
Samkvæmd annarri rannsókn frá
PriceWaterhouse Coopers geta kaupendur
sparað allt að 70% við umsýslu innkaupa
og seljendur allt að 85%. Þessu til viðbót-
ar geta markaðstorg auðveldað almenna
stýringu á innkaupum og greiningu á inn-
kaupahegðun, bæði fyrir kaupendur og
seljendur.
Líklega er markaðstorg bílarisanna í
Detroit eitt það stærsta og best þekkta, en
það kallast Covisint (www.covisint.com).
Þar kaupa bílarisarnir í gífurlegu magni
inn íhluti frá birgjum og undirverktökum
til samsetninga á eðalvögnum sínum.
Staðan er í raun sú að vilji birgi eða fram-
leiðandi á íhlutum eiga möguleika á við-
skiptum við einhvern af bílarisunum, þá
verður sá hinn sami að tengjast Covisint
markaðstorginu.
Sérstaklega er mikilvægt að með upp-
byggingu markaðstorga sé stutt við helstu
staðla sem gera fyrirtækjum kleyft að
stunda rafræn viðskipti, m.a. xCBL, sem
auðveldar samræmda uppfærslu vörulista,
pantanagerð, reikningagerð, greiðslur o.fl.
Samkvæmt nýlegum samningi við ríkið
mun ANZA setja upp markaðstorg fyrir
kaupendur og seljendur sem nýtast mun
bæði ríkisstofnunum og almennum fyrir-
tækjum. ANZA byggir upp markaðstorgið
í samstarfi við IBX í Svíþjóð
(www.ibxnordic.com) sem náð hefur
miklum árangi í uppbyggingu markaðs-
torga á Norðurlöndum. Meðal viðskipta-
vina IBX eru t.d. Ericsson, SE Banken,
Volvo og Norska ríkið.
Með samningi sínum við ANZA um
uppbyggingu rafræns markaðstorgs vonast
Islenska ríkið til að ná fram verulegum
sparnaði og hagræði í innkaupum stofn-
anna sinna, auk þess að virkja betur notk-
un og skilvirkni rammasamninga.
I Rafræna markaðstorginu verður til að
byrja með lögð áhersla á viðskipti með
rekstrartengdar vörur og þjónustu (óbein
innkaup), s.s. með almennar skrifstofuvör-
ur, hreinlætisvörur, tölvuíhluti, hráefni
fyrir mötuneyti auk ýmissa tengdra þjón-
ustuþátta. Um þessar mundir er reynslu-
hópur öflugra kaupenda og seljenda orð-
inn þátttakandi í markaðstorginu og rnunu
fyrstu viðskiptin milli þeirra fara fram í
júní 2002. Opnað verður fyrir almennan
aðgang stofnanna og fyrirtækja að mark-
aðstorginu síðsumars 2002.
Höfundur:
Olafur Ingþórsson
Sviðsstjóri Veitulausna og rafrænna viðskipta
ANZA hf.
1 AberdeenGroup. Wanted: Rapid Deployment and
ROI for e-Procurement, April 9, 2000
10
Tölvumál