Tölvumál - 01.07.2002, Blaðsíða 24
Stýrikerfi
Stefán Hrafn Hagalín
Það er ekki nóg með að ríkisstjómir
Finnlands, Frakklands og Þýska-
lands hafi nýverið ákveðið að styðja
við bakið á opnum stöðlum og taka upp
notkun á Linux-stýrikerfinu. Það er nefni-
lega allt á fleygiferð í Linux-heiminum
um þessar mundir hvað snertir þróun stýri-
kerflsins og tengds búnaðar fyrir atvinnu-
lífið og fyrirtækjamarkaðinn.
Fyrir utan Microsoft og fyrirtæki hlið-
holl hugbúnaðartröllinu í Redmond, þá
virðist varla fyrirfinnast sá aðili í þekking-
ariðnaði sem ekki hefur tekið Linux upp á
arma sína á einn eða annan hátt. Þetta
afkvæmi Linus Thorvalds er núna loksins
að slíta bamsskónum og farið að fóta sig
fyrir alvöm á fyrirtækjamarkaði. I greinar-
komi þessu verður stuttlega fjallað um tvo
merka áfanga í þessum efnum.
Fyrir það fyrsta tilkynnti Linux-fram-
leiðandinn Caldera fyrir skömmu um sam-
starfsverkefni með Conectiva, SuSE Lin-
ux og Turbolinux sem er hugsað til þess
að styrkja og efla stöðu Linux á fyrir-
tækjamarkaði. Verkefnið ber yfirskriftina
„UnitedLinux“ og gengur einfaldlega út á
að smíða staðlaða fyrirtækjaútgáfu af Lin-
ux. (Nánari upplýsingar er að finna á vef-
svæðinu UnitedLinux.com.)
Til höfuðs Red Hat
Linux-fyrirtækin fjögur eru augljóslega að
ganga í bandalag til að keppa sameinuð
við Red Hat Linux frá samnefndu fyrir-
tæki, sem er langsamlega útbreiddasta
Linux-útgáfan. Samkvæmt markaðsrann-
sóknafyrirtækinu IDC var markaðshlut-
deild hins fjórhöfða Caldera-bandalags
um 25 prósent á síðasta ári á sama tíma og
Red Hat hafði vel liðlega 50 prósenta hlut-
deild.
Sköpun sameiginlegrar og staðlaðrar út-
gáfu af Linux gerir fyrirtækjum, jafnt sem
framleiðendum hugbúnaðar og vélbúnað-
ar, auðveldara fyrir við að bjóða Linux-
vörur og -þjónustu sem einfalt er að sam-
tvinna og vinna þægilega með hvort öðru.
Brátt kunnu þeir dagar verða að baki þegar
framleiðendur þurftu að stilla til og aðlaga
búnað sinn á mismunandi hátt í stíl við þá
Linux-útgáfu sem viðskiptavinir vilja
nota.
Víðtækur stuðningur
Fjöldi aðila í þekkingariðnaði hefur þegar
lýst yfir fullum stuðningi við UnitedLin-
ux-verkefnið og þar á meðal eru IBM,
SAP, Fujitsu Siemens, Hewlett-Packard,
Computer Associates, Advanced Micro
Devices (AMD) og Intel. Þar með sýnist
framtíð UnitedLinux nokkuð trygg í nán-
ustu framtíð, þótt ómögulegt sé að spá um
velgengni fyrirbærisins til langtíma.
Athyglisvert þykir að Caldera hefur
höfuðstöðvar sínar í Utah-fylki og Turbol-
inux er til húsa í Kalifomíu á meðan SuSE
er þýskt fyrirtæki og Conectiva er staðsett
í Brasilíu. Sameinað bandalag þessara
misjafnlega sterku Linux-framleiðenda
breiðir þess vegna úr sér yfir merkilega
stórt svæði og getur látið hressilega til sín
taka um víða veröld.
Barist í bökkum
Margir hafa bent á að Caldera, Conectiva,
SuSE Linux og Turbolinux eiga það öll
sameiginlegt að hafa barist í bökkum
mörg undanfarin ár. Sér í lagi hefur Cald-
era gengið illa upp á síðkastið, líkt og
slæm tíðindi af fjórðungsuppgjörum hafa
gefið til kynna. Þannig að gagnvart mörg-
um virðist UnitedLinux örvæntingarfull
tilraun til að snúa hlutunum við.
Aðrir vilja fremur líta til þess að hinn
slitrótti Linux-markaður þurfi einmitt á
svonalöguðu að halda. Samrunaferli og
samstarf er nefnilega óumflýjanlegur
fylgifiskur þess að markaðir taka út
þroska. Og í ýmsu tilliti er þetta nýja
bandalag fjórhöfðans algjör forsenda fyrir
áframhaldandi lífvænleika þeirra.
„Unbreakable Linux"
Af öðrum athyglisverðum fréttum af Lin-
ux-vígstöðvum er vert að nefna að Dell,
Oracle Corporation og Red Hat tilkynntu
fyrir skemmstu um viðamikið samstarfs-
verkefni á sviði Linux fyrir fyrirtækja-
24
Tölvumál