Tölvumál - 01.07.2002, Side 30
Kjallaragrein
Verkefnisstjóramir gáfu þá umsögn að
þeir mæltu eindregið með notkun á
vöndlinum, einkum fyrir þá notendur sem
ekki gera mikið af því að skiptast á
skjölum við notendur samkeppnisbúnaðar
frá Microsoft. í Ijós komu samhæfnis-
vandamál er tengdust Microsoft Word-
skjölum. Finnska ríkisstjómin hefur
sömuleiðis gangsett ráðstefnur og nám-
skeið fyrir opinbera starfsmenn þar sem
þeir em kynntir fyrir Linux og hugbúnaði
sem grandvallaður er á opnum stöðlum.
Um það bil 13 prósent af miðluram og
netþjónum hjá finnska ríkinu keyra nú
Linux, en ríkisstjómin hefur sem stendur
ekki í hyggju að stýra því hvaða hugbúnað
einstakar stofnanir kjósa að nota.
Frakkland
Það eru að verða tvö ár síðan ráðuneyti
menningar og samskipta í Frakklandi
ákváðu að skipta út stýrikerfunum
Windows NT og IBM AIX Unix fyrir Red
Hat Linux á mörgum stærri netþjónum
sínum. í augnablikinu hefur þetta átt sér
stað á 50 af 300 netþjónum hins opinbera.
Jafnframt tóku ráðuneytin í notkun
Apache-vefmiðlara og Zope-viðfanga-
miðlara, sem báðir eru grundvallaðir á
opnum stöðlum. Að sögn talsmanna
ráðuneytanna hefur þessi breyting ekki
einungis sparað ríkinu umtalsverðar
fjárhæðir, heldur hefur nýi hugbúnaðurinn
reynst mun öflugri og áreiðanlegri en sá
sem fyrir var.
Kína
Opinberir embættismenn í Peking
undirrituðu umfangsmikla samninga við
kínversk hugbúnaðarhús fyrir fáeinum
mánuðum og sniðgengu Microsoft algjör-
lega. Einn af samningunum var við
kínverska hugbúnaðarhúsið Red Flag
Software, sem fékk það verkefni að útbúa
einkatölvur og netþjóna hins opinbera
með eigin útgáfu af Linux-stýrikerfmu.
Stjórnvöld í Hong Kong hafa enn fremur
gangsett liðlega eitt hundrað Linux-
netþjóna á síðustu þremur árurn.
Þrýstingur innanlands um að ríkið forðist
að lenda í heljargreipum eins ákveðins
hugbúnaðarsala (les: Microsoft) hefur leitt
til þess að hið opinbera í Kína hefur
fengið gríðarlegan áhuga á opnum
stöðlum og frjálsum hugbúnaði. Sam-
kvæmt opinberum tölum rennur um
helmingur útgjalda kínverska nkisins á
sviði hugbúnaðar rakleiðis til Microsoft.
Með notkun á frjálsum hugbúnaði áætlar
kínverska ríkið annars vegar að spara sér
stórfé, öðlast meiri stjóm yfir eigin búnaði
og auka samkeppni. Hins vegar er tak-
markið að minnka hugbúnaðarþjófnað, en
árið 2000 voru 97 prósent hugbúnaðar í
Kína ólöglega fengin.
Noregur
Nýjar áskriftareglur fyrir notkun á
Microsoft-hugbúnaði hafa stóraukið
áhuga opinberra stofnana og mennta-
kerfisins í Noregi á frjálsum hugbúnaði
sem byggir á opnum stöðlum. Ráðuneyti
iðnaðar og viðskipta fyrirhuga ítarlegar
prófanir á Linux og öðrum skyldum
hugbúnaði. Stórbrotin átaksverkefni eru
fyrirhuguð í þessum efnum og er talið að
Noregur muni þar fylgja nokkuð í kjölfar
ríkja innan Evrópusambandsins, en það
mun í sumar hefja svokallaða eEurope-
áætlun í sumar, en hún innifelur meðal
annars ítarlegar prófanir og umræður um
frjálsan hugbúnað.
Perú
Þingið í Perú er nú með til umfjöllunar
lagasetningu sem myndi neyða allar
opinberar stofnanir í landinu til að nota
frjálsan hugbúnað sem byggir á opnum
stöðlum. Viðskiptahugbúnað frá aðilum á
borð við Microsoft, IBM og Lotus mætti
þá einungis nota ef enginn annar valkostur
fyrirfyndist á sviði frjáls hugbúnaðar.
Talsmenn lagasetningarinnar segja að
þetta myndi spara hinu opinbera stórfé á
ársgrundvelli. Jafnframt myndu lögin
minnka mjög ólöglega notkun á hug-
búnaði, en áætlað er að sextíu prósent af
öllum hugbúnaði í notkun hjá hinu
opinbera séu ólögleg. Lögin hafa hlotið
harða gagnrýni þar sem aðallega er
kvartað undan alræðistilhneigingum
ríkisins og jafnframt bent á að slíkar
ráðstafanir hefti mjög sjálfstæðis ríkis-
stofnana. Eins hafa hugbúnaðarfyrirtæki í
landinu mótmælt lögunum að einhverju
leyti og segja þau binda um of hendur
framsækinna hugbúnaðarsmiða í landinu.
30
Tölvumál