Bókasafnið - 01.12.1983, Qupperneq 30
mörg önnur störf og ég er viss um að
ég hefði unað mér vel á ýmsurn
öðrum „hillum“.
Nú ert þú einn stofnenda ogfyrsti
formaður Skólavörðunnar. Það
hljóta að vera mörg viðfangsefni og
baráttumál hjásvo ungufélagi.
Já, vissulega eru mörg verkefni að
takast á við. Við stofnuðum félagið
fyrst og fremst til að efla samvinnu og
tengsl milli skólasafnvarða, bæði á
grunn- og framhaldsskólastigi, jafn-
framt því sem við viljum vekja at-
hygli á málefnum skólasafna al-
mennt. Skólasöfn á íslandi eru til-
tölulega ung og það má segja að stefna
í málefnum þeirra sé í mótun. Reglu-
gerð um skólasöfn í grunnskólum
hefur ekki verið gefin út enn, og án
reglugerðar eru allar kröfur um
menntun og starfshætti skólasafn-
varða á þessu skólastigi mjög óljósar.
Það eru deildar meiningar um kröfur
til menntunar, en við í Skólavörð-
unni leggjum áherslu á að menntun í
bókasafnsfræðum sé nauðsyn þeim,
sem starfa á skólasöfnum, samhliða
kennslufræðilegri þekkingu. Við
hljótum að telja það meðal forgangs-
verkefna félagsins að vinna að mótun
ákveðinnar stefnu í þessum málum.
Við höfum einnig mikinn hug á að
koma á samnýtingu ýmissa verkefna
sem safnverðir hafa unnið og koma
þannig í veg fyrir margverknað. Það
er mikilvægt að stuðla að aukinni
samvinnu milli skólasafnvarða á
grunn- og framhaldsskólastigi og við
viljum endilega fá safnverði sem
starfa úti á landi sem mest inn í sam-
starfíð.
Hefurðu gaman affélagsstörfum?
Nú seturðu mig alveg í mát. Þessu
get ég hvorki svarað ákveðið játandi
eða neitandi. En ef að mér fínnst að-
kallandi að vinna að einhverju ver-
kefni þá á ég bágt með að vera hlut-
laus áhorfandi. Og þú kannast við
hvernig þetta er. Maður lætur í ljós
skoðun og fyrr en varir er maður
kominn á kaf í hitt og þetta. Sjái mað-
ur árangur af starfí sínu veitir það
góða tilfínningu. Skoðanaskipti og
samvinna að málefnum sem ég tel að
til heilla horfí verka á mig eins og
vítamínsprauta, svo að ég held að ég
verði að svara spurningunni játandi.
En prívatmanneskjan Jónína
Guðmundsdóttir. A hún nokkrar
tómstundir? Hvað tekur við að lokn-
um vinnudegi?
Æ, það er nú þetta venjulega.
Vökva blómin og grynna á mesta
draslinu þegar heim kemur. En það
gefast nú sarnt alltaf tómstundir til að
gera eitthvað skemmtilegt með fjöl-
skyldunni minni.
Maðurinn minn heitir Hólmgeir
Bjömsson og er deildarstjóri á Rann-
sóknarstofnun landbúnaðarins. Við
eigum þrjár dætur. Tvær þeirra eru
ennþá hjá okkur, en sú elsta er búin
að stofna sitt eigið heimili og gefa
okkur lítinn dótturson, sem er auga-
steinninn okkarallra. — Ogauðvitað
á ég ótal áhugamál. Ég hef gaman af
að lesa og hlusta á góða tónlist. Hér á
árum áður söng ég dálítið í kórum og
ég er alltaf að bíða eftir að fá tíma til
slíkrar þátttöku aftur. — Við höfum
gaman af að ferðast og þá ekki hvað
síst að rölta eitlhvað í rólegheitum úti
í náttúrunni. Ég er fædd og uppalin á
Þorgrímsstöðum í Húnavatnssýslu,
sem er fremstur bæja í afskekktum
dal. Þar átti ég góða bernskudaga og
ég finn að lengi býr að fyrstu gerð, því
að alltaf þegartækifæri gefast þá leita
ég burt frá byggð og fram til íjalla og
dala. — Og oftast finnst mér afskap-
legagaman aðlifa.
Það er auðvelt að koma
sér upp eigin bókasafni
Nú er auövelt fyrir bókaáhugafólk aö koma sér upp eigin bókasafni.
Meö því aö gerast félagi í BÓKAKLÚBBIARNAR OG ÖRLYGS gefst
fólki kostur á aö fá góöar bækur á mjög hagstæðu verði. Verö á nýjum
bókum er mun lægra heldur en á almennum markaði og óhætt er að
mæla meö fjölbreyttum valbókalista klúbbsins þar sem boönar eru
bækur á sérlega góöu veröi — sú ódýrasta kostar t.d. aðeins 11 krónur.
Þaö eru fáar kvaðir en margir kostir sem fylgja því aö vera félagi í
BÓKAKLÚBBIARNAR OG ÖRLYGS.
Bókaklúbbur Arnar og Örlygs
Síðumúla11
sími 84866.
30
BÓKASAFNIÐ