Bókasafnið - 01.12.1983, Side 36
Úr ýmsum áttum
íslands-
kynning
I undirbúningi er útgáfa sérstaks
íslands-blaðs af tímaritinu Scandi-
navian Public Library Quarterly,
sem gefið er út á ensku af norrænu
bókafulltrúunum.
íslands-heftið mun koma út í
byrjun næsta árs og verður m.a. not-
að sem kynningarblað í tengslum
við norræna bókavarðaþingið sem
haldið verður í Reykjavík í júní.
KHP
Námskeið á
vegum
Norrænu
almennings-
bókasafns-
nefndar-
innar
Þrír íslenskir bókaverðir, Erla
Jónsdóttir Garðabæ, Jón Sævar
Baldvinsson Mosfellssveit og Þórdís
Þorvaldsdóttir Norræna húsi sóttu
námskeið í sænskum bókmenntum
í Borásdagana 12.—22.sept.
Fimm bókaverðir sóttu námskeið
í Álaborg 10. —14. okt. sem fjallaði
um bókasafnsþjónustu við fötluð
börn í stofnunum og heimahúsum.
Þeir voru: Ásta Rögnvaldsdóttir
Blönduósi, Erla K. Jónasdóttir
Borgarbókasafni, Helga K. Einars-
dóttir Kópavogi, Helga Jónsdóttir
Mosfellssveit og Sigrún Magnús-
dóttir ísafirði. KHP
Af erlendum
vettvangi
Bókafulllrúi Dana, Kristian
Lindbo-Larsen, sem margir íslenskir
bókaverðir kannast við, hefur nú
skipt um starf. Hann mun á næst-
unni flytja til Álaborgar og taka þar
við stjórn Det nordjyske lands-
bibliotek.
Bókafulltrúi Norðmanna, Else
Granheim, sem margir munu einn-
ig kannast við, hefur verið kosin
forseti IFLA, Alþjóðasamtaka
bókasafna, til tveggja ára til viðbót-
ar. Else Granheim hefur nú gegnt
þessu embætti í þrjú ár. KHP
36
BÓKASAFNIÐ