Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 25
þá fljúgandi mávar. Mis-
tök af þess tagi er auðveld-
lega hægt að laga, því
upprunalegu filmunni er
ekki breytt heldur er unn-
ið með afrit. Með þessari
tækni gefst tækifæri til að
njóta gamalla kvikmynda
á ný. Gamlar myndir og
sögulegt efni í varðveislu
safnsins er afritað á mynd-
bönd eftir óskum.
Hljóðverið endurvinn-
ur gamlar plötur og hljóð-
upptökur. Verið er að færa
78 snúninga hljómplötur
yfir á geisladiska. Oll
aukahljóð eru hreinsuð út
en einnig er hægt að bæta inn hljóðum sem vantar. Unnið er
að því að varðveita gamlar upptökur með því að gera öryggis-
og notkunareintök.
Margmiðlunartækni gefur færi á að blanda saman mynd-
um, texta, hljóði og kvikmyndum. 1 Noregi er verið að vinna
að „norskum hljóðgagnagrunni“ (Norsk Lydbank) sem á að
skapa möguleika á að hægt verði að nálgast ýmiss konar efni
á víðneti (Internet). Þetta er samvinnuverkefni sem kallast
JUKEBOX á vegum Evrópusambandsins sem Noregur, Dan-
mörk, Italía og England vinna að sameiginlega. Hljóð- og
myndadeildin í Mo sér um notendarannsóknir í tengslum við
verkefnið. Ætlunin er sú að hægt sé að fletta upp í grunnin-
um t.d. undir efnisorðinu Grieg og laginu I höll dofrans (I
dovregubbens hall). Eftir örfáar mínútur fáist svar og hægt sé
að láta tölvuna spila fyrir sig lagið, sýna sér nóturnar eða lesa
texta um samningu verksins (Jukebox ... s. 6). Þannig verði
hægt að nota gögn í ýmsu formi á einum diski.
Tölvuþróun
Þrjár deildir heyra beint undir stjórnanda stofnunarinnar
og sinna þær hver um sig ákveðnum sérverkefnum, jafnframt
því að vera sú undirstaða sem aðrar deildir byggja á. Þessar
deildir eru stjórnunardeild, tæknideild og deild tölvuþróunar.
Hér er aðeins ætlunin að gera grein íyrir tölvudeildinni.
Deildin sér, eins og nafnið bendir til, um tölvuþróun. I
þessu felst það fyrst og fremst að gera þau gögn sem berast
til safnsins í skylduskilum aðgengileg í tölvutæku formi.
Tölvudeildin sá um hönnun á heimasíðu þjóðbókadeild-
arinnar í Rana (Nasjonalbibliotekavdelinga; NBR) á veraldar-
vefnum (World Wide Web) á Internetinu.
(http://mack.nbr.no/welcome.html). Einnig hefur deildin
unnið nokkur verkefni þar sem heil skjala- eða ljósmynda-
söfn eru skönnuð og gerð aðgengileg á geisladiski (CD-
ROM) eða á Internetinu.
Hér ber fýrst og fremst að nefna ljósmyndagagnagrunn
sem nú er komin í gagnið á Internetinu. Þetta verkefni var
unnið í safninu í samstarfi við önnur söfn. Ahersla var lögð á
að almenningur þyrfti ekki að eiga hátæknivædd tæki til að
leita í gagnagrunningum. Grunnurinn er bæði bókfræðilegur
og myndrænn, fólk getur fundið myndir eftir ýmsum leið-
um og séð myndina á tölvuskjánum heima hjá sér. Gæði
myndarinnar eru þó ekki slík að hægt sé að taka hana t.d.
beint inn í eigin tölvu og prenta út, heldur er hægt að panta
afrit af henni í gagnagrunninum. Þetta er gert til að tryggja
höfundarréttinn (Gamle bilder ... s. 6).
Ekki er reiknað með að
þeir sem setja inn mynd-
irnar og upplýsingar séu
alvitrir og þess vegna er
innbyggður í gagnagrunn-
inn möguleiki fyrir not-
andan að koma á framfæri
athugasemdum. Fleiri
myndagagnagrunna mætti
nefna eins og Fridjof Nan-
sen fotoarkiv, grunn um
plaköt og ólögleg dagblöð
frá stríðsárunum auk ým-
issa bókfræðilegra grunna.
Kosningaloforðin eru nú
ekki lengur gleymd og
grafin strax að kosningum
loknum, því eftir sveitar-
stjórnarkosningarnar 1991 hannaði tölvudeildin geisladisk
þar sem öllu því efni sem dreift var á meðan á kosningabar-
áttunni stóð var safnað saman. Efni sem dreifist venjulega á
hina ýmsu flokka í venjulegu bókasafni er nú leitarbært í
frjálsri textaleit (free text search) á einum litlum diski (Ná er
valgloftene ... s. 3).
Skipulag vetrarólympíuleikanna í Lillehammer þótti takast
ótrúlega vel. Akveðið var að gera skýrslu um leikana og dreifa
í tölvutæku formi og er það í fyrsta sinn sem öllu efni frá
Ólympíuleikum er komið á framfæri á þennan hátt. Tölvu-
deildin tók að sér þetta verkefni og var það í lokavinnslu þeg-
ar okkur bar að garði. A geisladisknum er skýrslan á norsku,
ensku og frönsku, myndir af þátttakendum og einstökum at-
burðum, kvikmyndir eru þarna einnig, auk skráa og mynda
af verðlaunum og verðlaunahöfum. Þegar hönnun disksins
er lokið verður hann fjöldaframleiddur og dreift af safninu
(Lillehammer-OL... s. 8).
Starfsmenn deildarinnar vinna að yfirfærslu gagna frá ýms-
um söfnum inn í BIBSYS, Gegni þeirra Norðmanna. Deildin
vinnur einnig að þróun gagnagrunna fyrir útgáfu bókaskráa
og þar má nefna nýtt forrit sem gert var til þess að hægt væri
að gefa út samíska bókaskrá bæði í prentuðu og tölvutæku
formi. Tölvudeildin skapar með vinnu sinni allsherjaraðgang
að gögnum sem varðveitt eru í Mo eða á öðrum söfnum. Um
leið og hver gagnadiskur er unnin fara fram prófanir á bestu
aðgangs- og birtingarmöguleikum hinna ýmsu gagna. Þannig
miðlar tölvudeildin í Mo ómetanlegri þekkingu á framsetn-
ingu gagna í tölvutæku formi sem á eftir að nýtast öðrum.
Geymslusafh
Geymslusafnið þjónar öðrum söfnum með efni sem þau
eiga ekki sjálf. Safnið er því hugsað sem einskonar Boston
Spa Noregs. Hlutverk safnsins er geymsla, útlán og endur-
nýting efnis sem önnur bókasöfn skila inn þegar þau grisja
safnkost sinn. Þar að auki fær geymslusafnið eitt skylduskila-
eintak til útlána þannig að í safninu er einnig nýtt efni.
Efni sem er sent frá öðrum bókasöfnum er m.a.:
* Bækur og tímarit sem lítil hreyfing er á í útlánum.
* Bækur sem til eru of mörg eintök af.
* Ritraðir sem taka mikið pláss.
Geymslusafnið safnar öllu þessu í einn sameiginlegan safn-
kost sem er raðað í aðfangaröð og tryggir þannig góða og
hagkvæma nýtingu bókasafnsefnisins.
í safninu eru u.þ.b. 3000 hillumetrar með allt frá mynda-
bókum til doktorsritgerða, efni frá 1700 til 1994. Safnkostur-
Starfsmaður í deild tölvupróunar við störf
Bókasafhið 19. árg. 1995 25