Bókasafnið - 01.04.1995, Síða 35
ir veggi þess að hluta til, t.d. má þá kenna á skrár bókasafn-
anna í tölvustofum skólanna.
Öll söfnin sem hafa tölvuvæðst eru með tölvuprentara á
sínum snærum, flest þrjá en fæst einn. Vissulega er þörfin fyr-
ir slík tæki mismikil eftir skólastærð, en segja má að lágmark
sé tveir prentarar, einn fyrir starfsfólk og annar fyrir nemend-
ur. Ef bókasafn er nærri skrifstofu má e.t.v. að einhverju leyti
samnýta prentara, t.d. dýra leysiprentara. Tafla 6 sýnir fjölda
tölvuprentara á safni.
Tafla 6 - Fjöldi tölvuprentara
Fjöldi tölvuprentara Fjöldi safna %
0 1 10%
1 3 30%
2 4 40%
3 2 20%
Samtals 10 100%
Fram kom í könnuninni að 60% safnanna eru tengd um-
heiminum með mótaldi. Þau tengjast öll íslenska mennta-
netinu og tengdust fyrstu söfnin því árið 1992. Þess má geta
að Islenska menntanetið tók formlega til starfa í febrúar
1992. Starfsmenn safnanna hafa þar með tölvupóstföng, að-
gang að áðurnefndum umræðuhóp framhaldsskólasafnanna
(frh-bok@ismennt.is) og bókavarða almennt (skrudda@rhi.
hi.is) sem stofnaður var 30. október 1994. Þrjú safnanna hafa
aðgang að alþjóðlegum umræðuhóp skólasafna: School Libr-
ary Media & Network Communications (LM_NET@sum.
syr.edu, sjá Eisenberg, 1994, s. 31—33). Mjög áhugavert og
fróðlegt er að fylgjast með umræðum starfsfélaga erlendis og fá
m.a. staðfestingu á því að þeir eru að fást við sömu vandamál
og við hér heima erum að glíma við.
Gegnum Islenska menntanetið hafa söfnin aðgang að
Internetinu sem leiðir þau að upplýsingum um allan heim.
Af tengingum við aðra gagnabanka má t.d. nefna að fjögur
safnanna eru tengd við DOBIS/LIBIS gagnabankann og eitt
er tengt Streng (Gagnasafhi Morgunblaðsins).
Ekkert safananna er enn komið með formlegan almenn-
ingsaðgang að Islenska menntanetinu og Interneti fyrir not-
endur sína.
Um þessar mundir er svokölluð margmiðlun (e. multi-
media) óðum að ryðja sér til rúms. Margmiðlun kallast t.d.
geisladiskar (CD-ROM) þar sem efni er sett fram á mismun-
andi hátt í einum og sama miðlinum, t.d. sem texd, tal, tón-
ar, kvikmyndir, Ijósmyndir, töflur eða línurit.
80% safnanna hafa nú þegar yfir geisladrifi, tæki framtíð-
arinnar, að ráða. 50% safnanna fengu sitt fyrsta drif á sl. ári
(1994) og söfnin eru nú sem óðast að byggja upp safnkost á
forrni geisladiska.
Fyrsta geisladrifið á framhaldsskólasafn kom árið 1986 á
Bókasafn Verzlunarskóla Islands, en næsta safn fékk sitt drif
árið 1991.
Til samanburðar má geta þess hér til gamans að fyrsta
geisladrifið kom á Háskólabókasafn árið 1986, en geisladisk-
ar (CD-ROM) komu fyrst á markað árið 1985 og í október
árið 1993 átti Háskólabókasafn 21 titil slíkra diska á
notendaaðgangi (sbr. Halldóra, 1993, s. 2).
Af þessari úttekt á tölvuvæðingu bókasafna í alm'ennum
framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu má ráða að söfnin
eru almennt séð komin á gott skrið inn á upplýsingahrað-
brautina (e. the information superhighway), sem svo rnikið er
fjallað um úti í þjóðfélaginu nú í augnablikinu. Mesti vaxtar-
broddurinn er í tölvuvæðingu spjaldskráa og uppsetningu
geisladrifa sem veita aðgang að nýju formi safnefnis sem er í
örri þróun þannig að fjölbreytileiki þess og gæði aukast
stöðugt, bæði hvað tækni og innihald varðar.
Geisladiskar (CD-ROM) eru tiltölulega nýtt efni á bóka-
söfnum almennt og eru t.d. hlutfallslega fá söfn yfirleitt far-
in að lána út slíkt efni (sbr. Lifer, 1995, s. 44)
Til samanburðar má nefna að samkvæmt könnun Library
JournaDxaís. 40% bókasafna í Bandaríkjunum geisladrif sem
ráða við margmiðlunartækni (Lifer, 1995, s. 45). A markaði
eru enn sem komið er aðeins rúmlega 2000 titlar margmiðl-
unardiska (sbr. Gillespie, 1995, s. 40) en alls um 6000 titlar
geisladiska (CD-ROM) skv. Mecklermedias CD-ROMs in
Print 1994 (sbr. Nicholls, 1994, s. 40).
Segja má að þessi nýja tækni sé enn í vöggu og þyki enn þá
nokkuð dýr ef vandaður vélbúnaður er keyptur (sbr. Shoema-
ker, 1995, s. 28) og verðið á diskunum réttlæd ekki kaup á
þeim heldur liggi kostirnir í því hversu aðgengilegt efni þeirra
er þeim notendum sem þá vilja nota.
I bandarískri rannsókn (sbr. Trotter, 1994, s. 22) kom í
Ijós að í lok skólaársins 1992-1993 voru 11% framhalds-
skóla (e. high schools) tengdir Interneti. Einnig kom í Ijós að
skólarnir áttu þá sex geisladiska (CD-ROM) að meðaltali. Á
þeim söfnum sem hér er fjallað urn er fjöldi slíkra diska á
safn 6,9.
Upplýsingamiðlun um tölvur er vissulega stórt framfara-
spor. Sérstaklega eru tölvur vel til þess fallnar að hýsa hvers
konar skrár gagna, þar sem þær bjóða upp á mjög markvissar
og skilvirkar upplýsingaleitir.
Almennt er talið að efni sem varðveita á lengi sé betur
borgið á prentuðu formi á pappír en eingöngu á tölvutæku
formi nema stöðugar uppfærslur komi til, sem gerist t.d. sjálf-
krafa við hvers konar skrár sem stöðugt bætist við eins og t.d.
skrár bókasafna.
Helsta ástæða þessa er að sá hugbúnaður og vélbúnaður
sem hýsa upplýsingarnar verða gjarnan fljótt úrelt og stöðugt
verður að endurnýja báða þessa þætti. Þannig að upplýsingar
sem voru keyptar á tilteknu formi fyrir áratug verður e.t.v.
ekki lengur hægt að skoða og nýta í framtíðinni, því þær eru
á úreltu formi, en sjálfar upplýsingarnar e.t.v. ekki orðnar úr-
eltar.
Með bókina er þessu öfugt farið, þar er það innihaldið
sem að jafnaði úreldist er ekki formið. Frá því á árdögum
prentlistar um miðja 15. öld hafa sömu aðferðir gilt fyrir not-
endur bóka við að nálgast upplýsingar þeirra, þ.e. að opna
bókina og byrja að lesa, en hvað varðar tölvuvæðingu upp-
lýsinga þá er almennt talið að ný kynslóð vélbúnaðar og hug-
búnaðar komi á markað annað hvert ár og fljótt kemur að
því að gömul og ný tæki er ekki hægt að samhæfa. Hvaða
tölvunotandi kannast t.d. ekki við óþægindin sem fylgja því
að tölvudisklingar eru af mismunandi stærðum (5,25 " hinir
eldri og 3,5 " þeir nýrri) og báðar stærðirnar ganga því ekki í
sömu diskadrifin.
Þess má einnig geta að þau atriði sem almennt er talið að
ekki hafi verið leyst varðandi tölvuvæðingu upplýsinga eru
heimildir til afnota af efni á tölvutæku formi, höfundarréttar-
mál og meðferð geymslueintaka (sbr. Shaw, 1994, s. 211).
Lokaorð
Vissulega hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan á frum-
býlingsárum bókasafna í framhaldsskólum enda hafa söfnin
vaxið og dafnað þó enn búi nokkur þeirra við mikil þrengsli
og öll séu þau undirmönnuð miðað við erlenda staðla um
Bókasafnið 19. árg. 1995 35