Bókasafnið - 01.04.1995, Side 37
Þóra Gylfadóttir, Bókasafni Hagstofu íslands, Krístin Bragadóttir, Landsbókasafni
Islands — Háskólabókasafni, Erna G. Arnadóttir, Bókasafni Landsspítalans
Millisafnalán á íslandi
1976-1993
Inngangur
Fyrir atbeina stjórnar Félags bókavarða í rannsóknarbóka-
söfnum var stofnaður áhugahópur um millisafnalán haustið
1993. Nordiska vetenskapliga bibliotekarie förbundet, sem
hefur beitt sér fyrir ráðstefnum um millisafnalán, lagði til að
samskonar hópar störfuðu á öllum Norðurlöndunum.
Áhugahópurinn gerði á þorra og góu 1994 könnun á milli-
safnalánum í íslenskum rannsóknabókasöfnum. Sambærileg-
ar kannanir voru gerðar í Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð. Millisafnalán hafa lengi verið í deiglunni í þessum
löndum og bókaverðir eru meðvitaðir um mikilvægi þeirra
og að þau aukast jafnt og þétt.
Að könnuninni stóðu Erna G. Arnadóttir frá bókasafni
Landspítala, Kristín Bragadóttir frá Háskólabókasafni, Linda
Erlendsdóttir frá Kennaraháskóla íslands, Ólafur Páll Jóns-
son frá Háskólabókasafni, Pálína Héðinsdóttir frá bókasafni
Náttúrufræðistofnunar Islands og Þóra Gylfadóttir frá bóka-
safni Hagstofu Islands. Undirbúningsvinnu lauk í febrúar
1994, spurningaeyðublað var sent út í sama mánuði. Spurt
var um millisafnalán á árinu 1993. Nokkrar spurningar giltu
aðeins fyrir einn mánuð og var mars 1994 valinn til þess gefa
mynd af þeim mánuði.
Markmið könnunarinnar var að meta hve mikil aukning
hefði verið á þessum þætti bókasafnsþjónustu hér á landi og
að skoða með hvaða hætti bókasöfn útvega lánþegum sínum
efni sem þau eiga ekki. Spurningaeyðublað var sent til 66
rannsókna- og framhaldsskólabókasafna. 54 söfn svöruðu
könnuninni. Áhugavert þótti að skoða umfang millisafnalána
í framhaldsskólasöfnunum og voru þau tekin sem sérstakur
hópur í könnuninni.
Könnunin var einskorðuð
við rannsókna- og fram-
haldsskólabókasöfn þótt
fróðlegt hefði verið að
skoða millisafnalán allra
tegunda safna. Þá var á-
kveðið að kanna tækja-
búnað safnanna og kostn-
að við millisafnalán.
Spurningin um hver á að
greiða fyrir þjónustuna
verður æ áleitnari en ekki
hafa enn ekki verið teknar
áltvarðanir þar að lútandi
nema í fáum tilvikum.
Skilgreiningar
Með millisafnalánum
er átt við efni sem bóka-
safn lánar öðru bókasafni
til að fullnægja kröfum lánþega þess. Efnið sem um ræðir get-
ur verið frumrit eða afrit.
Með hugtakinu rannsóknabókasafn er átt við bókasafn þar
sem þjónustan miðar að upplýsingamiðlun í þágu sérhæfðra
rannsókna eða verkefna. Skiptir engu hvort um er að ræða
þvervísindalegar rannsóknir, eins og oft eiga sér stað á há-
skólabókasöfnum, eða ákveðið fræðisvið í bókasöfnum stofn-
ana sem sinna sérhæfðum verkefnum. Ekki eru skýr mörk
milli bókasafna stofnana tengdum atvinnulífi eða stjórnsýslu
og eiginlegra rannsóknabókasafna. Hér er hvort tveggja fellt
undir skilgreininguna rannsóknabókasafn.
Fyrri kannanir
Könnunin sem hér er einkum fjallað um er fjórða athugun-
in á millisafnalánum sem gerð hefur verið hér á landi. Árið
1977 var myndaður starfshópur bókavarða í rannsóknabóka-
söfnum til að gera úttekt á millisafnalánum. Hópurinn stóð
m.a. fyrir könnun á millisafnalánum á árinu 1976. Niðurstöð-
ur úr könnuninni birtust í skýrslu sem starfshópurinn gaf út
árið 1978 og nefnist Millisafnalán á Islandi. Kristín Bragadótt-
ir skrifaði B.A. ritgerðina Millisafnalán árið 1977 þar sem
einnig er fjallað um þessa könnun. Árið 1982 var önnur
könnun gerð fyrir árið 1981 og eru niðurstöður hennar rakt-
ar í B.A. ritgerð eftir Erlu Sigþórsdóttur, Allsherjaraðgangur að
ritum (UAP) og könnun á millisafnalánum á Islandi. Haustið
1987 var enn myndaður starfshópur um millisafnalán og
kannaði hann umfang millisafnalána í rannsóknabókasöfnum
árið 1987. I apríl 1988 var haldin námsstefna í Odda þar sem
hópurinn kynnti niðurstöður sínar. Einnig er fjallað um þessa
könnun í grein eftir Guð-
rúnu Pálsdóttur í Bóka-
safhinu 1989, 13. árg.
Þessar kannanir, ásamt
þeirri sem gerð var fyrir
árið 1993, geyma mikil-
vægar upplýsingar um
umfang millisafnalána á
þessum árum og minna
jafnframt á mikilvægi
þess að halda tölulegum
upplýsingum til haga.
I könnuninni fyrir
árið 1976 var lagður
grunnur að spurninga-
eyðublaðinu sem notað
hefur verið í öllum könn-
ununum. Bætt hefur ver-
ið inn nokkrum spurn-
ingum vegna tækninýj-
unga svo sem tilkomu
Starfsmenn í millisafnalánum í Landsbókasafiii
Islands - Háskólabókasafni. Ljósm.: Edda Sigurjónsdóttir.
Bókasafhið 19. árg. 1995 37