Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.04.1995, Qupperneq 40

Bókasafnið - 01.04.1995, Qupperneq 40
ist almennt ekki notaður til þess að panta millisafnalán frá út- löndum. Ekki var spurt um hvernig afrit og greinar væru send til íslenskra safna, en full ástæða er til þess þegar millisafnalán verða könnuð næst. Reynt var að fá svör við hversu langan tíma tæki að afgreiða millisafnalán til og frá útlöndum en hér fór á sömu leið og áður þar sem spurt var um tímamörk og eru því engin áreiðanleg svör við þeim spurningum. Helstu viðskiptalönd Spurt var um þau þrjú lönd sem mest væri leitað til og frá hvaða þremur löndum flestar beiðnir um millisafnalán bær- ust. Islensk bókasöfn sækja mest til Norðurlandanna. Dan- mörk er oftast nefnd, þá koma Svíþjóð og Noregur en fast á eftir fylgir Bretland. Flestir fá beiðnir um millisafnalán frá Danmörku og Noregi, Svíþjóð fylgir þar á eftir. Onnur lönd komast vart á blað. Ekki var spurt um hversu margar beiðnir voru sendar til hvers Iands né hversu margar beiðnir komu frá hinum ýmsu löndum, heldur einungis til hvaða landa væri oftast leitað og frá hvaða löndum bærust oftast beiðnir um millisafnalán. Öll bókasöfnin voru jöfn hvort sem þau sendu frá sér eina beiðni eða eitt þúsund. Þetta skýrir t.d. af hverju Bretland, Þýskaland og Bandaríkin virðast leika svo lítið hlut- verk í millisafnalánum. Það er umhugsunarefni fyrir næstu könnun hvort ekki sé rétt að breyta spruningunni til þess að frá fram hver eru raunverulega mikilvægustu viðskiptalönd okkar í millisafnalánum Eyðublöð og lánsefni Spurt var um hvort bókasöfnin notuðu sérstök eyðublöð þegar þau pöntuðu efni í millisafnaláni. Aðeins 28 bókasöfn af 54 nota sérstök eyðublöð. Það vekur nokkra athygli, eink- um í Ijósi þess hversu mikil áhersla er lögð á notkun eyðu- blaða í öllum alþjóðlegum reglum og leiðbeiningum um millisafnalán. Söfnin voru einnig spurð um hvort eitthvað af efni þeirra væri ekki lánað út. 37 bókasöfn sögðu svo vera. Var þar í langflestum tilvikum um að ræða tímarit, handbæk- ur, nýsigögn og gamalt efni. Samskrár og hjálpargögn Yfirgnæfandi fjöldi bókasafnanna nefndi Samskrá um er- lend tímarit í íslenskum bókasöfnun og stofhunum, sem það hjálpargagn sem mest væri notað í millisafnalánum, en TVOS/’-skráin kom þar næst. Flest bókasöfnin nefndu einnig Gegni og ýmsar skrár á Interneti, ýmist annað eða bæði. Það fylgir sögunni að þeir sem hafa aðgang að Interneti hafa þar með aðgang að Gegni, en því þarf ekki að vera öfugt farið. Læknisfræðibókasöfnin hafa nokkra sérstöðu hvað varðar hjálpargögn. Auk þess að nefna framangreindar skrár nefna þau svo til öll List-BioMed, Medline, Nordser og Tímaritalista sjúkrahúsbókasafhanna. Önnur hjálpargögn sem sjaldnar eru nefnd eru Dobis/Libis, Dialog og ritalistar frá British Lend- ing Library. Kynning á millisafhalánum í bókasöfhum 26 rannsóknabókasafnanna og 8 af framhaldsskólasöfnun- um sögðust kynna millisafnalán fyrir notendum sínum. Flest þessara safna höíðu fleiri en einn hátt á kynningunni. Algeng- ast var kynna þau í samtölum við safnnotendur, 21 safn nefndi þann hátt. 12 bókasöfn sögðust kynna millisafnalán í sérstökum bæklingi, 9 með safnkynningum og 7 í innanhúss- ritum, ársskýrslum og með tölvupósti. Tækjakostur Af 42 rannsóknabókasöfnum kváðust 40 hafa yfir tölvu að ráða, en 10 af 12 framhaldsskólasöfnunum. 15 rannsókna- bókasöfn voru með skanna. 51 bókasafn hafði aðgang að bréfasíma, þar af öll rannsóknarbókasöfnin utan eitt, en 10 af 12 framhaldsskólasöfnum. Tölvupóstur virðist skammt á veg kominn. Aðgang að tölvupósti höfðu 23 rannsóknabókasöfn og 7 framhaldsskólasöfn, samtals 30 eða 56%. Það er nokkur ágalli á könnunni að ekki er greint á milli innanhússpósts og tölvupóstfangs á Interneti. Forvitnilegt verður að sjá fram- vinduna á þessu sviði þegar næsta könnun á millisafnalánum Tafla 7. Tækjakostur bókasafna Rannsókna- Framhalds- Fjöldi safna sem eiga bókasöfn skólasöfn Samtals eftirtalin tæki: (42) (12) (54) Tölvur 40 10 50 Skanni 15 0 15 Bréfasími 41 10 51 Tölvupóstur 23 7 30 Geisladrif 13 6 19 verður gerð. Það færist sífellt í vöxt að gagnasöfn, bæði stað- reynda- og bókfræðigagnasöfn, séu gefin út á geisladiskum og hafa mörg bókasöfn notfært sér þessa nýju tækni. I könn- uninni var einnig spurt hversu mörg bókasöfn ættu geisladrif. Reyndust 13 rannsóknabókasöfn eiga geisladrif og 6 fram- haldsskólasöfn eða samtals 19. Fllutfallslega eiga fleiri fram- haldsskólasöfn geisladrif eða helmingur á móti 31% rann- sóknarbókasafnanna. Samtals eru það 35% safnanna. Tekjur og útgjöld Það færist í vöxt að bókasöfnin verði að kaupa þjónustu sem áður var ókeypis. Þarna eru millisafnalán ekki undan- skilin. Þetta knýr mörg safnanna til þess að afla tekna á móti útgjöldunum og eru millisafnalán nokkrum bókasöfnum tekjulind. Spurt var um tekjur og útgjöld safnanna af milli- safnalánum. Þessari spurningu þótti mörgum erfitt að svara, því í mörgum dlvikum er bókasafnið, hvað þá millisafnalán- in, ekki sérstakur bókhaldsliður. Fengust því ekki marktæk svör við þessum spurningum. Þó má sjá af þeim svörum sem fengust að tekjurnar eru heldur meiri en útgjöldin. Ekki var spurt um þann kostnað sem hlýst af því að taka gjald fyrir millisafnalán. Að lokum var spurt um hvort bókasöfnin væru með sérstaka gjaldskrá fyrir millisafnalán. Einungis 4 rann- sóknabókasöfn svöruðu því jákvætt, en ekkert framhalds- skólasafnanna. 40 Bókasafrið 19. árg. 1995
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.