Bókasafnið


Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 42

Bókasafnið - 01.04.1995, Blaðsíða 42
T?neykslid: -■ ííauan utn 3afó»tid Js og eldur v.-■«-O- Sundemo ■Ryldýpid Ókindin Pálína Magnúsdóttir, Bókasafni Seltjarnarness Bókaval og afþreyingar- bókmenntir Almenningsbókasöfn hafa undanfarin 10-15 ár átt í vaxandi samkeppni við aðra miðla skemmtunar og fræðslu, svo sem sjónvarp, myndbönd og tölvur. Utlánatölur safn- anna hafa lækkað eða staðið í stað. I ársskýrslu bókafulltrúa ríkisins um almennings- bókasöfn fýrir árið 1993 má þó lesa um mikla aukningu útlána. Þetta eru gleðitíðindi fyrir almenningsbókaverði en jafnframt ástæða til að leiða hugann að því hvað veldur þessari miklu aukningu útlána. Hafa söfnin verið með markvisst átak í gangi til að auka útlán og fjölga lánþegum sem er að skila sér núna? Hafa mörg söfn flutt í betra hús- næði sem býður upp á bætta þjónustu? Er skýringanna að leita út í þjóðfélaginu? Hefur aukið atvinnuleysi þau áhrif að fólk fer í auknu mæli á bókasöfnin? Er fólk einfaldlega orðið leitt á þeirri afþreyingu sem það hefur og kýs að breyta til og fara á bókasafnið? Sennilega skýra ofantalin atriði að einhverju leyti aukin útlán. En þá er ótalinn einn þáttur sem getur haft áhrif á útlán bókasafna en það er bókaval. Hafa söfnin sinnt kröf- um neytenda sinna og brugðist við breyttum þörfum og óskum? Bókaval er alltaf viðkvæmt mál. Allir virðast hafa skoðanir á því hvað á að finnast á bókasafninu. Hér á Iandi virðist þetta val oft vera handahófskennt, reynt er að kaupa flest allt sem kemur út, alla vega á stærri söfnum. Söfnin virðast ekki hafa neina skráða bókavalsstefnu, enda kannski ekki verið þörf á því þar sem bókaútgáfa hefur ekki verið meiri en svo að söfnin hafa getað keypt það sem kemur út árlega. Hin síðari ár hefur útgáfa á svokölluðum vasabrotsbókum stóraukist. Og með út- gáfu þeirra hefur málið farið að vandast til muna. Skyndilega stóðu bókaverðir frammi fyrir hinu erfiða vali. Atti að kaupa svokallaðar sjoppubókmenntir á söfnin? Ég tel að óhætt sé að segja að þetta vandamál hefjist með útgáfu bókanna um ísfólk- ið. Sagan um Isfólkið kom fyrst út árið 1982 og útgáfu ritraðarinnar lauk árið 1989. Strax í byrjun fóru almenningsbókaverðir að velta því fyrir sér hvort réttlætanlegt væri að kaupa þessar bækur inn á söfnin og sýndist sitt hverjum. Áður voru miklar umræður um myndasögur fyrir börn (Tinni, Svalur og Valur, Lukku Láki o.fl.). Ég man eftir ein- um bókaverði sem lét sér ekki segjast og keypti allt inn á safnið sitt og síðan hefur safn- ið haft þann heiðursstimpil að vera „afþreyingarsafn". Með árunum hafa fleiri söfn fylgt í kjölfarið og farið að kaupa inn þessar bækur. Norðmenn rifust um Isfólksbækurnar í tímaritinu Bok og Bibliotek 1992 og 1993, eða allt frá því að bókavörðurinn í Orland, Morten Haugen, lýsti því yfir að þær inni- héldu guðlast og tók þær úr útlánum. Hann heldur því fram að það sé ekki ritskoðun af sinni hálfu, en ákvörðunin sé þó byggð á áliti hans á bókunum. Hörð viðbrögð urðu við þessari umdeildu ákvörðun, og næstu misseri á eftir mátti lesa hverja greinina á fætur annarri um ritskoðun á bókasöfnum. Margar þessar greinar eru hin mesta skemmtilesn- ing og vel þess virði að kynna sér þær. M.a. lýsir Willy Dahl, prófessor í Norrænum bókmenntum við Háskólann í Bergen á mjög skemmtilegan hátt hvernig hann upplifði kynni sín af bókvörðum í æsku. Hann fór á bókasafnið sitt og sagði bókaverðinum að það sárvantaði Tarzan-bækur í hillurnar. Bókavörðurinn benti honum í mestu vinsemd á að hann hefði ekki gott af því að lesa „þess háttar" bækur. Willy Dahl útvegaði sér bækurnar annars staðar. Síðar varð hann prófessor í Norrænum bókmenntum. Dahl segir að hann hafi vaxið frá Tarzan-bókunum, og vill að fólk fái frið til að vaxa frá fs- fólksbókunum án afskipta annarra. Allir lesendur hafa ekki efni á að kaupa þær og því ættu þær að vera til að almenningssöfnum. Það er engin spurning um það að söfnin hafa ákveðnu upplýsingahlutverki að gegna. Þau eiga að hafa á boðstólnum efni fyrir fólk svo það geti aflað sér upplýsinga um flest allt undir sólinni. Hins vegar vita almenningsbókaverðir að ef söfnin hefðu þessi mark- mið eingöngu að leiðarljósi yrði ansi tómlegt um að litast á söfnunum. Staðreyndin er sú að langflestir koma á almenningssöfn til að leita sér að afþreyingu. Og þá er spurt, hvaða Sundémo Qaldratungl *** Sagan uni 3stolhKl Sundemo Konan á afröndinni Sogan ura líaKiihid Jcmo dTyrhraverh ---J-- Sundemo Djöílaíjallid öagan ura ásfólliid Sundemo 2 blidu og strídu öagan um SsíólhW • -----ýnTargif Sándemo Shapadægur FJ Sundemo Dóttir bödulsins 42 Bókasafhið 19. árg. 1995
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.