Bókasafnið - 01.04.1995, Page 45
íkjallara bókhlöðunnar eru þéttiskápar.
öðrum ráðningum var hins vegar gengið með föstum samn-
ingum, er gilda frá og með 1. mars og til ótiltekins tíma. Þó
bíður um sinn að ráða í fáein störf, einkum þau sem tengjast
rekstri hússins.
Þegar þessari lotu ráðninga lýkur, væntanlega íyrir mitt ár
1995, verða í bókasafninu um 80 stöðugildi, og eru þá ótal-
in fáein störf við veitingarekstur. Áætlað hefur verið, að safn-
ið þurfi á 115 stöðugildum að halda miðað við fullan rekstur.
Væntingar um hið nýja safn eru miklar, eftir allan þann
tíma sem tekið hefur að koma því á fót, og í rauninni ætlast
notendur til þess að safnið sé starfrækt af fullu afli frá upp-
hafi. Á það er einnig að líta, að allt húsið er tekið í notkun
þegar á íyrsta ári, svo og allur tæknibúnaður þess. Þá má það
heldur ekki gleymast, að flutningi og skráningu er alls ekki
lokið, og verið er að móta ýmsa starfsþætti, sem vart eða ekki
voru til áður. Annir eru því miklar í safninu og víða tekur í.
Matstofa starfsfólks.
Hlutverk og markmið
Landsbókasafns íslands
- Háskólabókasafns
(6. og 7. grein laga nr. 71/1994)
Bókasafnið er þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Is-
lands.
Safnið er rannsóknarbókasafn sem skal halda uppi á-
virkri og fjölþættri upplýsingaþjónustu á sviði vísinda
og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs.
Hlutverk bókasafnsins er m.a.:
Að viða að sér gögnum í prentuðu formi eða á öðr-
um miðlum, skrá þau og búa í hendur notendum.
Að þaulsafna íslenskum gögnum, m.a. með viðtöku
skylduskila, svo og að afla erlendra gagna er varða ís-
lensk málefni.
Að varðveita handritasöfn þau sem stofnað hefur ver-
ið til, vinna að frekari söfnun og rannsóknum íslenskra
handrita og samsvarandi efnis á nýrri miðlum. Hið
sama á við um hliðstætt erlent efni sem varðar Island.
Að tryggja sem best viðhald og varðveislu safnkosts-
ins. I því skyni skal m.a. starfrækja bókbandsstofu, við-
gerðarstofu og myndastofu. Þá skal taka frá eitt eintak af
öllu efni sem berst í skylduskilum, undanskilja það allri
venjulegri notkun og geyma tryggilega.
Að starfrækja bókminjasafn.
Að gera skrár um íslenskar bækur, handrit og hljóð-
rit, svo og eftir atvikum margvíslegar efnisskrár.
Að halda uppi rannsóknum á sviði íslenskrar bók-
fræði og bóksögu og veita upplýsingar um íslenska
bókaútgáfu.
Að starfrækja landsskrifstofu fýrir alþjóðabóknúm-
erakerfið og samsvarandi númerakerfi annarra safn-
gagna, eftir því sem stjórn bókasafnsins ákveður.
Að gefa safngestum kost á vinnuaðstöðu og sem
greiðustum aðgangi að safngögnum.
Að leiðbeina notendum bókasafnsins eftir föngurn
um heimildaöflun og halda uppi fjölþættri upplýsinga-
þjónustu.
Að sinna þörfum kennslu og rannsóknarstarfsemi í
Háskóla Islands.
Að stuðla að sínu leyti að sjálfstæði og frumkvæði há-
skólanema í námi.
Að veita bókasafns- og upplýsingaþjónustu í þágu at-
vinnuvega, stjórnsýslu, rannsókna og hvers kyns lista og
menningarmála í landinu.
Að starfrækja samskrá bókasafna og láta bókasöfnum
í té tölvu- og skráningarþjónustu eftir því sem stjórn
bókasafnsins ákveður.
Að stuðla að samræmingu starfshátta í íslenskum
bókasöfnum, veita þeim faglega ráðgjöf og eiga við þau
sem víðtækast samstarf.
Að vera landsmiðstöð fyrir millisafnalán.
Að taka þátt í fjölþjóðlegu samstarfi á sviði rann-
sóknarbókasafna og upplýsingamála.
Að stuðla að fræðslu- og menningarstarfsemi, m.a.
með því að standa að fýrirlestrahaldi, sýningum og list-
viðburðum.
Bókasafnið 19. árg. 1995 45